Hraði :)

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Haffi » Sat 18. Jan 2003 14:44

á gamla 520ia '89 bílnum var það 225
"gamla" 320i 96 var það 220
og á X5 anum 250

Núna ef ég huxa útí það þá fer ég ekkert meira en 120 í framtíðinni !!
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby iar » Sat 18. Jan 2003 15:23

Ozeki wrote:En ég vil hvetja menn til að sleppa því að prófa hámarkshraðann á bílnum sínum hérna á Íslandi. Í alvöru talað, þá eru vegirnir hérna ekki gerðir fyrir hámarkshraða á neinum bíl (nema kannski Yogo Zastavasta ;-)) og margt er lagt í stórhættu við þetta !


Sammála þér með vegina. Þeir eru enganvegin gerðir fyrir mikinn hraða, bæði eru þeir yfirleitt óvenjulega mjóir með enga eða lélega kanta. Þar að auki hjálpar "þaklagið" ekki þar sem akreinarnar halla yfirleitt furðulega mikið út í kantana sem svo eru engir eða stórhættulegir. :(

Það væri munur ef til væri alvöru æfingaaðstaða þar sem væri hægt að prófa bílinn almennilega.


PS: 180km/klst á VW Passat 1.8TD Station á Autobahn í Þýskalandi. :-)
Slatta lægra hér heima en samt nógu hátt til að skammast mín soldið fyrir það. :?
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Bjarki » Sat 18. Jan 2003 17:35

Ég hef sett minn í 180km/klst í sumar bara svona prófun það var náttúrlega hérna á klakanum.
Erlendis hef ég sett 523iA bíl sem ég var að flytja inn í hámarkshraða sem er 228km/klst þá bara sló hann af, þetta var um miðja nótt og engin umferð bíllinn var að höndla þetta ótrúlega vel. Keyrði hann um og yfir 200km/klst í nokkra klukkutíma og móður minni sem hringdi reglulega í mig og fylgdist með ferðum mínum á korti stóð ekki á sama!!
Í sömu ferð var ég og vinur minn með Saab 9-3 turbo disel bílalegubíl og ókum honum um Þýskaland og Ítalíu hann var settur í hámarkshraða sem var eitthvað um 200km/klst.
Setti síðan 520i E39 bílaleigubíl í 220 sem er hámarkshraði þá var hann í fullum snúning í 5. gír.
Setti líka eitt sinn Ford Focus bílaleigubíl í Þýskalandi í sinn hámarkshraða sem var 210km/klst, fínn bíll en hann var ekki að höndla það vel.
Eftir þessa akstursreynslu mína í Þýskalandi veit ég fátt skemmtilegra heldur en að keyra þarna um í heimalandi BMW 8)
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Logi » Sat 18. Jan 2003 18:47

Á hraðbraut rétt fyrir utan Munchen á M. Benz SL500 í júní á síðastliðnu ári:
Rúmlega 260 samkvæmt hraðamæli, á mynd af hraðamælinum heima :D . Hraðatakmarkarinn sló honum út þar, þannig að ég reikna með að raunhraði hafi verið 250 km/klst. Þetta var klukkan 6:30 að morgni.
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby SkuliSteinn » Sat 18. Jan 2003 18:56

Ég, eins og flestir vita, setti Golfinn minn í 200+ á Öxnadalsheiðinni (á milli Blöndós og Akureyrar) fann varla fyrir hraðanum. Ekkert veghljóð eða vindhvinur og ekki neitt.

Geri það ekki aftur :x
Það eina sem aldrei breytist er að allt breytist.
User avatar
SkuliSteinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 57
Joined: Sat 04. Jan 2003 22:17
Location: Keflavík

Postby íbbi » Sat 18. Jan 2003 19:44

hmm það er nú spurning.. setti Trans aminn minn einu sinni uppí alveg svakalegann hraða, mælirinn í honum sýndi 140 og var búið að taka stop-pinnan úr og hélt því mælirinn bara áfram.. ég man nú ekki hvert mælirinn var komin en hann var vel á leið komin með að vera kominn í 2 hringi :)..
fyrri eigandi bílsins var stoppaður þegar mælrinn var komin aftur í 20mph og var þá mældur á 218kmh minnir að hann hafi verið farinn að nálgast 40mílunar hjá mér.. en vá ég sá varla húddið í fókus..
og núna eftir á séð sér maður nú að þessi rétt svo tvíbreiði vegur var alls ekki góður í þetta...

svo setti ég gamla camaroinn minn bara eins hratt og hann mögulega komst en þá einmitt fékk ég að prufa það að halda bíl í botni eftir beinum vegi í nokkrar mín.. (eftir að hann var kominn í botn 8) ) hversu hratt bíllin var kominn veit eg ekki en ég man að ég var dáldið msyekur við að hann myndi fljúga af veginum þar sem afturendinn á bílnum byrjaði nánast að svífa í mishæðum..

coltinn minn setti í í 210 á beinum kafla.. en þessi bíll er alveg ótrúlegt líitið kvikindi og fór á beinum kafla uppí 195 í 4 gír.. það fynst mér nokkuð ágætt :roll:

prufaði 750ial á bílasölu fyrir nokkru setti hann uppí 200 og vá.. hann á ekki mikið heldur bara allt eftir virtst vera..

setti 3000gt vr4 uppí 220 og það var hellingur eftir...

og svo mætti lengi telja.. en það hraðasta sem ég hef farið í bíl var líklegast þegar ég sat í porsche 928 s4 á 260.. og jújú það var nóg eftir :twisted:
"Drive it like you stole it!"
Maxima Qx v6.
User avatar
íbbi
Kassabílstjóri
 
Posts: 185
Joined: Sat 26. Oct 2002 19:51

Postby arnib » Sat 18. Jan 2003 21:22

Gaman að heyra allar þessar reynslusögur og ég vona að áhyggjur ykkar af lögreglunni séu nú óþarfar :-)

Væri svekkjandi ef allir meðlimir bmwkrafts fengju kæru heim til sín eftir nokkra daga..



7-9-13 :)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby morgvin » Sun 19. Jan 2003 02:55

mesta sem ég hef komið mínum 518i uppí er 190-5 en hann var bara ekki að auka hraðan eftir það og vegurinn endaði stuttu seinna en hann lá eins og köttur á veginum og 1600 vti civicinn á undan mér vara eins og mállingar dolla í hristi vél.

hef ekki prófað að þenja aðra bíla, því miður.

en þessir vegir hérna damn.

en þeir eru að fara búa til der islandic autobahn.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby DXERON » Sun 19. Jan 2003 05:31

var að aka á hellisheiðinni í mözdu mx3 6cyl opið púst og kraftloftsía..eina sem var búið að gera við bílinn...... hann var einnig á nýjum michelin pilot sport dekkjum og ný hjólastilltur aftan og framan...
höndlaði vel á 232 - 235 km hraða í mjög langan tíma...
en hraðast var ég á 323i mínum á 210 mætti löggu sem setti radarinn í gang og var að koma sér fyrir uti kanti á móti mér... bremsurnar fengu að finna fyrir því og ég keyrði framúr löggunni á 110.... þá var kærastan að mana mig upp því hún var í glasi.... (hefði örugglega komist hraðar því ég er á 200 í 4 gír... )

en í dag eftir að ég eignaðist jeppa hefur hraðaþörfin minnkað mikið...
Dabbi Xeron
BMW 323i '82 E21 (Seldur)
Jeep Cherokee Laredo 38" Blár(Heitir Blámi)
Colt '91
User avatar
DXERON
Kassabílstjóri
 
Posts: 164
Joined: Tue 03. Sep 2002 22:19
Location: Mosó

Postby SkuliSteinn » Sun 19. Jan 2003 12:15

Löggan getur ekki gert rassgat í því sem stendur hérna. Ég gæti þess vegna sagt ykkur að ég drap mann á Þingvöllum í fyrrasumar :twisted:
Það eina sem aldrei breytist er að allt breytist.
User avatar
SkuliSteinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 57
Joined: Sat 04. Jan 2003 22:17
Location: Keflavík

Postby saemi » Sun 19. Jan 2003 14:42

Úfff.. best að ergja þig ekki .....

Hvað gerði annars greyið maðurinn á Þingvöllum af sér ?

Sæmi :lol:
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby SkuliSteinn » Sun 19. Jan 2003 14:52

Hann átti ekki pening fyrir skuld. Var samt líftrygður. Slysin gerast á ólíklegustu stöðum.
Það eina sem aldrei breytist er að allt breytist.
User avatar
SkuliSteinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 57
Joined: Sat 04. Jan 2003 22:17
Location: Keflavík

Postby saemi » Sun 19. Jan 2003 21:04

Bíddu bíddu bíddu.. ertu ekki að segja að þetta sé djók með Þingvelli...

Ég er ekki alveg að fylgja straumnum hérna skohh..

Sæmi :shock:
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby SkuliSteinn » Sun 19. Jan 2003 21:05

...................................................................................
Það eina sem aldrei breytist er að allt breytist.
User avatar
SkuliSteinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 57
Joined: Sat 04. Jan 2003 22:17
Location: Keflavík

Postby montoya » Sun 19. Jan 2003 22:03

Kveðja Sæsi.,
User avatar
montoya
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 68
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:50
Location: Njarðvík

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests