bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 05:42

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 158, 159, 160, 161, 162, 163, 164 ... 246  Next
Author Message
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 22. Jan 2010 21:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
íbbi_ wrote:
það er mikill skítur held ég inní þessu milestone máli, spurning hvort steingrímur sé að reyna bjarga sér,eða hvort þetta sé raunverulega svona, sögurnar af karli virðast þó nokkuð samsíða hjá steingrími og þór,

annars erum við hérna að ræða fjölskyldu eins spjallverja :oops:

Hvers ?

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 22. Jan 2010 23:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
Zed III wrote:
íbbi_ wrote:
það er mikill skítur held ég inní þessu milestone máli, spurning hvort steingrímur sé að reyna bjarga sér,eða hvort þetta sé raunverulega svona, sögurnar af karli virðast þó nokkuð samsíða hjá steingrími og þór,

annars erum við hérna að ræða fjölskyldu eins spjallverja :oops:

Hvers ?

Ingunn Wernersdóttir er mamma hans Kwóta.. :)

_________________
BMW E34 ///M5

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sat 23. Jan 2010 08:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
krullih wrote:
Finnst þetta bagalegt sjónahorn, en virði það engu að síður. Að fara yfir á rauðu ljósi er alltaf lögbrot, hvort sem það sé um nóttu eða dag. Hinsvegar er munur á því að fara yfir á rauðu eða stunda ofsaakstur á flótta undan réttvísinni.

Einnig er munur á því að stela súpu eða stela milljörðum, það er bara þannig. Í bókstafslegum skilningi er þetta bæði stuldur, en af töluvert annari stærðargráðu.
Sögusagnir eru auðvitað slæmar, en öll umræða þarf að geta átt sér stað - ýmislegt hefur komist upp með því einu að byrja á samræðum á spjalli - en ætli það sé ekki hægt að segja að meirihluti þessara 'sagna' er uppspuni og hefur gríðarleg áhrif á aðstandendur, eins og íbbí kemur kannski inná.

Það var nú enginn að tala um að stela súpu, en þú ert náttúrulega að nota það til að meika point.

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sat 23. Jan 2010 14:46 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Alpina wrote:
íbbi_ wrote:
það er mikill skítur held ég inní þessu milestone máli, spurning hvort steingrímur sé að reyna bjarga sér,eða hvort þetta sé raunverulega svona, sögurnar af karli virðast þó nokkuð samsíða hjá steingrími og þór,

annars erum við hérna að ræða fjölskyldu eins spjallverja :oops:

Og ???

Nákvæmlega, hvað með það?

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sat 23. Jan 2010 14:47 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 09. Oct 2009 13:41
Posts: 1145
Aron Fridrik wrote:
Zed III wrote:
íbbi_ wrote:
það er mikill skítur held ég inní þessu milestone máli, spurning hvort steingrímur sé að reyna bjarga sér,eða hvort þetta sé raunverulega svona, sögurnar af karli virðast þó nokkuð samsíða hjá steingrími og þór,

annars erum við hérna að ræða fjölskyldu eins spjallverja :oops:

Hvers ?

Ingunn Wernersdóttir er mamma hans Kwóta.. :)

Sem græddi hvað, tvöþúsundogfjögurhundruð milljónir á kostnað okkar allra (lífeyrissjóðirnir) þegar bræðurnir lánuðu sjálfum sér 6 milljarða úr Milestone, sem fór svo á hausinn ("mission accomplished") til að m.a. kaupa hana út úr félaginu? Eða man ég þetta vitlaust? http://www.visir.is/article/20090918/VI ... 750485092/

Já, svona fjölskyldur eru sko landi og þjóð til sóma. Alvöru verðmætasköpun hér á ferð. :roll:

_________________
335i e92 (JB4, downpipes og margt fleira gúdderí.)
330d e46 (Mr. X!)

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sat 23. Jan 2010 16:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
veit samt ekki til þess að viðkomandi aðili hafi verið að gera eitthvað hlut okkar hérna,(spjallmeðlimurinn þ.e.a.s)

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sat 23. Jan 2010 17:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
íbbi_ wrote:
veit samt ekki til þess að viðkomandi aðili hafi verið að gera eitthvað hlut okkar hérna,(spjallmeðlimurinn þ.e.a.s)

Alls ekki - virðist vera prýðispiltur og ég held að enginn sé að
böggast út í hann persónulega. Fúl staða sem hann er í.

Það kemur hins vegar ekki í veg fyrir að talað sé um þau mál sem
snerta hans skyldmenni. Það hefur komið fram að kröfuhafar og ríkið (við)
þurftu að leggja minnir mig 12 milljarða inn í þetta félag sem
skyldmenni hans voru búin að blóðmjólka. Móðir Kwóta "seldi"
sinn hlut á 2.400.000.000 krónur til bræðranna sem tóku sér lán hjá
félaginu til kaupanna. Þeir hafa ekki borgað krónu af þessu láni og
þetta fellur á okkur skattborgarana. Sumir horfa á þessi viðskipti og
segja að þetta sé bara alveg eðlilegt en mér tekst það ekki.

Vonandi tekst með tíð og tíma að gera þetta að verðmætu félagi og
selja það þannig að ríkið fái eitthvað til baka en það er bara alls ekki víst.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Sun 31. Jan 2010 02:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 23:40
Posts: 2731
Flott lag,flottur texti og myndbandið er magnað...en átakalegt. :shock:

Þetta hlýtur að eiga heima hér inni :roll:

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 05. Feb 2010 11:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Posts: 1905
Location: RVK
Nú er EUR búinn að veikjast á móti Krónu í kringum 5 kr á sl viku eða svo

Hvað er að valda ? Grikkland ?

Á maður að selja eur ? eða mun þetta rjúka aftur upp þegar höftin verða afnumin, ef það þá gerist einhvertíman. Hvað segir Fjármálasérfræðingur bmwkrafts(fart)

_________________
E39 530D ///M Sport

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 05. Feb 2010 11:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Steinieini wrote:
Nú er EUR búinn að veikjast á móti Krónu í kringum 5 kr á sl viku eða svo

Hvað er að valda ? Grikkland ?

Á maður að selja eur ? eða mun þetta rjúka aftur upp þegar höftin verða afnumin, ef það þá gerist einhvertíman. Hvað segir Fjármálasérfræðingur bmwkrafts(fart)

Evra er að veikjast á móti öllum gjaldmiðlum. Íslensk króna telst varla ein af þeim þar sem hún er ekki á frjálsum markaði heldur er nánast því "fastgengisstefna" á Íslandi og takmarkaður aðgangur að því að selja krónur og kaupa gjaldeyri... Þetta sérðu ef þú skoðar t.d. gengi á USD/ISK hjá seðlabankanum, nú eða Pund. Ekkert af stóru ákvörðununum undanfarið hefur haft áhrif á "krónugengið" á meðan skuldatryggingaálagið á Íslenska ríkið hefur sveiflast eins og ljósastaur í Febrúarbyl, enda á frjálsum markaði.

http://www.m5.is/?gluggi=graf&gjaldmidl ... &fasti=100

Ef þú berð þetta saman við t.d. sveiflur á EUR/USD þá sérðu að Sveiflan á EUR/USD á sama tíma er frá 1.40 upp í rúman 1.50 (síðast í desember) og svo aftur niður fyrir 1.40

http://finance.yahoo.com/echarts?s=EURU ... =undefined

Svona til gamans þá er hið alræmda offshore gengi skv Deutsche bank núna 270-290 kaup/sala EURISK.

Edit: Svona til að bæta við þá er þessi veiking Evru á heimsmarkaði hagstæð fyrir Íslendinga ef við förum inn í Evruna, þó að ég sé ekki að segja að það verði á genginu 177 heldur hugsanlega mun hærra. Evran hefur verið ofmetin í töluverðan tíma gagnvart dollar og pundi, allavega eru markaðirnir að segja það og þetta Grikklands/Spánar/Portúgalsdæmi er bara notað sem afsökun og trigger til að fara út úr Evrunni.

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 05. Feb 2010 12:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
Er nokkuð verið að treida CDS á Ísland þ.a. er þetta skuldatryggingarálag ekki bara ómarktækt með öllu.

Væri mest gaman ef það væri skráð skuldabréf á ríkið erlendis, þá fengi maður almennilega hugmynd um vaxtakjörin.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 05. Feb 2010 12:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Zed III wrote:
Er nokkuð verið að treida CDS á Ísland þ.a. er þetta skuldatryggingarálag ekki bara ómarktækt með öllu.

Væri mest gaman ef það væri skráð skuldabréf á ríkið erlendis, þá fengi maður almennilega hugmynd um vaxtakjörin.

Ég veit ekki hvert volume-ið er en skv. fréttum hefur verið töluvert volume á offshore krónumarkaðnum. Þegar hann var virkur (fyrir síðustu þrengingu haftana) var krónan 20-25% veikari en hjá Seðlabankanum, og sveiflaðist eftir því hvaða ákvarðanir voru teknar á Íslandi, ólíkt því hvað gerist með krónuna hjá Seðlabankanum. T.d. hafa varla sést breytingar á krónunni eftir að Forsetinn ákvað þjóðaratkvæði o.s.frv. sem klárlega hefði haft áhrif á hana ef hún væri frjáls. það er ekki nóg að horfa á evruna, það þarf að horfa á hina gjaldmiðlana líka og vega svo saman, en samt gengur það ekki þar sem að krónan er ekki á frjálsum markaði á Íslandi. Ef hraðamælirinn er fastur í 100km/h þá er ekki þar með sagt að bíllinn sé alltaf á 100km/h.

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 05. Feb 2010 12:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
fart wrote:

Ég var nú meira að pæla í vöxtakjörum og hvað mætti áætla út frá hækkandi skuldatryggingarálagi að séu eðlileg vaxtakjör á ríkið.

Ég hef nú meira frétt að volumið væri lítið úti og styrking krónunnar undanfarið hefði mátt rekja til þurrðar úti sem leiddi til þess að útflutningsaðilar voru duglegri að skipta gjaldeyri í krónur heima við (SÍ hefur ekkert verið á markaðinum undanfarið). Ég geri þó ráð fyrir að þú hafir mun betri heimildir en ég í þessu. Er annars vitað hvað mikið af krónum geta fræðilega verið á markaðinum úti, n.k. erlent peningamagn í umferð ?

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 05. Feb 2010 13:28 

Hef ekki hugmynd satt best að segja, en útlendingar áttu töluvert af krónum.

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Fri 05. Feb 2010 13:48 

Spurning hversu mikið hafi verið komið yfir í ríkisskuldabréfin af jöklabréfaútgáfunum, erlendir bankar enduðu auðvitað með góðan slatta af krónum eftir jöklabréfaswappin en þær krónur hljóta að hafa endar á innlendum bankareikningum/skuldabréfum (nema það hafi ekki verið höfuðstólaskipti).

Eitt er það þó sem ég fatta ekki, krónueign erlendra aðila hljóta að hafa verið hýstar á bankareikningum á Íslandi. Er þessi eign útlendinga ekki bara einhver skuldabréf sem eru hýst á erlendum vörslureikingum ? Eru nokkuð alvöru krónur erlendis nema þá eitthvað algjört smotterí ?

Ég er komin í ruglið...

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 158, 159, 160, 161, 162, 163, 164 ... 246  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group