Jæja núna er alltaf verið að bjóða manni að koma yfir í e-ð fyrirtæki,, hvort sem það er vodafone eða ring eða nova sem eru að hringja í mann.. og bjóða manni gull og græna skóga.. Hvað af þessu er best? og ég vil fá rökstuðningu með!
Sammála fyrri ræðumönnum, nova er einfaldlega bestir og ódýrastir. Ég fór yfir til þeirra þegar þeir komu fyrst á markað, keypti ekki síma né inneign (borgaði ekki krónu).. Þeir hafa aldrei sent mér rukkun fyrir einu né neinu og gefa mer alltaf 500kr inneign á mánuði sem dugar mér alltaf! Konan mín og flest allir vinir(80%) eru hjá nova.
Ég var hjá Vodafone í mörg ár í reikning og hann fór aldrei undir 7000kr á mánuði, þannig að þetta er allt annað líf að vera hjá nova!
Ég er búinn að vera hjá símanum og vodafone,, er núna hjá Nova og það er by far það besta sem ég hef kynnst,,, ekkert mánaðargjald,alltaf FRÍTT að hringja nova í nova og ég er að eyða svona 1000kr á mánuði í inneign.
Nova er klárlega málið í dag varðandi gsm. En svo er heimilið fastur viðskiptavinur símans og í hvert sinn sem maður athugar hvort að grasið sé grænna hinumegin þá endar maður alltaf á því að fara aftur til símans.