Skipta um ventlaleggsþéttingar...?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Skipta um ventlaleggsþéttingar...?

Postby GudmundurGeir » Fri 01. Jan 2010 12:58

Ég þarf að skipta um ventlaleggsþéttingar í toyotu sem við erum með hérna á heimilinu. Ég er 100% viss um að þetta eru þær sem eru alveg búnar... ekki hringirnir. Bíllinn fer með 1ltr af smurolíu á einum bensíntank sem er svona um 500km.

Mig langaði til að spyrja einhverja snillinga hvort þeir hefði reynt þetta... :) Ég bara nenni ekki að taka heddið af þannig
mér datt í hug að útbúa plögg við loftpressu sem fer í kertagatið og halda þannig loftþrýstingi á strokknum til að halda ventlunum uppi meðan ég tek gormanna af og skipti svo um þéttingarnar. Auðvitað setja stimpilinn á hverju strokk í topp þegar ég geri þetta.


Hefur einhver reynt þetta?? :D Ég bara nenni ekki að rífa heddið af hehe.
Guðmundur Geir Einarsson
Porsche 944S2 -> LS1
BMW 330xd Touring
Nissan Micra 2,0GTi
Hyundai Terracan
Image
User avatar
GudmundurGeir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 514
Joined: Wed 31. Mar 2004 13:58
Location: Reykjavík / Sjórinn

Re: Skipta um ventlaleggsþéttingar...?

Postby jens » Fri 01. Jan 2010 13:50

Þetta er vel hægt Guðmundur, ég gerði þetta nákvæmlega eins og þú þú ert að spá í.
Gerði þetta á E21 bíl, bjó til lofttengi úr kerti og hélt þrýsting á cylendrinum svo ventlarnir detti ekki ofan í þegar splittið er tekið. Mesta vandamálið var að þrýsta gorminum niður til að ná hálfmánasplittinu. Reyndi að smíða mér vogarafl úr flatjárni en endaði með að fá lánaða sérstaka töng á bílaverkstæði til að gera þetta. Þetta er ekki mikið mál og ég hafði enga reynslu að viðgerðum þegar ég gerði þetta, þetta var reyndar í fyrsta skipti sem ég skrúfaði eitthvað í viðgerðum. Skipti um tímareim og ventlafóðringar :D
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Re: Skipta um ventlaleggsþéttingar...?

Postby GudmundurGeir » Fri 01. Jan 2010 14:37

Það er snilld! Þá reyni ég þetta hehe. Það var einmitt eina sem ég hafði áhyggjur af... að þrýsta gormunum niður því þarna getur ma'ur ekki notað ventlatöng. En var búinn að finna ráð við því :)
Guðmundur Geir Einarsson
Porsche 944S2 -> LS1
BMW 330xd Touring
Nissan Micra 2,0GTi
Hyundai Terracan
Image
User avatar
GudmundurGeir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 514
Joined: Wed 31. Mar 2004 13:58
Location: Reykjavík / Sjórinn


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 50 guests