Hvít dekkjamálningEinn helsti útgjaldaliður fornbílamanna eru dekkjakaup, en nú er svo komið að hvítir hringir, einkum breiðir, eru ekki lengur fáanlegir. Dekk með inngreiptum hring þarf að sérpanta frá Bandaríkjunum og eru þau óheyrilega dýr. Nú hafa íslenskir fornbílamenn endurbætt níðsterka gúmmímálningu þannig hægt er að mála hvítan hring beint á dekk. Margföld teygjugeta efnisins og einstök viðloðun gerir það að verkum að hringurinn springur hvorki né flagnar, hvort sem um er að ræða nælon- eða radíaldekk. Nú geta fornbílamenn á ódýran hátt sett breiða, jafnt sem granna, hvíta hringi á dekkin, líkt og tíðkaðist í gamla daga. Þegar svo ekið er óvart utan í gangstéttarkant, þarf ekki lengur að kljást við krumpaðan eða rifin hring, heldur er málaði hringurinn einfaldlega þrifinn með Undra, hinu magnaða íslenska hreinsiefni. Dósin af dekkjamálningunni kostar einungis 1000 kr. og tekið er við pöntunum í síma 895-2400 eða í netfangi:
orn.sigurdsson@edda.is, en þangað má einnig senda fyrirspurnir vegna þessarar nýjungar.