Eins og menn segja, athuga hvort að snúran sé pottþétt heil, og þykkari snúrur þýða yfirleitt meiri gæði, en vissulega innan eðlilegra marka.
svo er líka mjög mikilvægt, þó svo að það komi þessu vandamáli í raun ekki við, að hafa frekar lágt í tölvunni, og hækka þá meira í magnaranum. Það að hafa mjög hátt í tölvunni er mjög slæmt þar sem að þar á sér stað mögnun sem kemur svo út sem bjögun þegar að magnarinn boostar merkið, því að magnarinn vill fá flatt merki (line input). Getur farið mjög illa með magnarann og hátalarana...
en svo getur nattúrulega verið að þú sért ekki að "mixa" neitt, þ.e. ert með magnara fyrir tölvuhátalara. Þá geturu bara strokað það út sem er hér fyrir ofan
