Bjarki wrote:
Vil benda mönnum á frábæra viðbót við Firefox vafrarann:
https://addons.mozilla.org/en-US/firefox/addon/3643Icelandic dictionary for mozilla products Þetta er semsagt yfirlestur á allt það sem maður ritar í vafraranum. Þeir sem eiga erfitt með að rita rétt fá alltaf athugasemd þegar orð eru vitlaust rituð. Það vill segja að hægt er að koma í veg fyrir mjög margar ritvillur, þessi yfirlestur sér ekki við vitlausri uppröðun setninga, vitlausum föllum eða öðrum slíkum villum en flest orð ættu að vera rétt rituð.
Ef menn ráða vitlaust í titilinn þá er það bara létt spaug, ég nota þetta sjálfur í íslensku, ensku og þýsku.
Ég tel það auka trúðverðugleiga þegar menn skila af sér réttum texta.
Ég er langt frá því að vera fullkominn..
Njótið vel!
(kannski repost en a.m.k. virkilega þörf ábending)
Trúverðugleika ekki trúverðugleiga, sem sagt ekki semsagt, "Það vill segja" ?

(ég held líka að vafrari sé ekki rétt þýðing á hugbúnaðinum "browser", held að vafri sé rétt þar en getur þó verið að bæði gangi)
En þetta er snilldar viðbót á firefox, ég er algjörlega sammála með trúverðugleikann. Ég dæmi fólk alveg svakalega eftir því hvernig það talar og ritar
