E28 518i 1986 - Saturnblau - 333.333 km

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

E28 518i 1986 - Saturnblau - 333.333 km

Postby srr » Thu 17. Dec 2009 17:46

Eins og margir hafa tekið eftir í söluþræðinum,,,,,þá fór ég og sótti þennan bíl norður á Siglufjörð í gær :)

Bíllinn hefur faktíst séð bara verið í eigu tveggja eigenda á undan mér.
Ég tel ekki með þriðja eigandann, sem seldi mér bílinn, þar sem hann átti hann bara í nokkrar vikur. No offense Siggi :wink:
Fyrsti eiganda átti hann frá 1986 og til 1995. Þá var bíllinn staddur á suðurlandi, amk fór hann alltaf í skoðun á Selfossi.
Næsti eigandi átti hann frá 1995 og þangað til í nóvember 2009.
Sá eigandi er búsettur á Siglufirði og var bíllinn þar síðustu 14 ár.
Bíllinn fór svo í hendur á þeim seldi mér bílinn í rúman mánuð og svo eignast ég hann :alien:

Alla tíð frá 1986 og þangað til 2006 þá bar bíllinn númerið X-3150, en þær plötur
voru innlagðar í ágúst 2006 og var bíllinn ekki notaður frá þeim tíma og þangað til í gær, þegar ég sæki hann.
Ég grennslaðist fyrir um gömlu númeraplöturnar, bæði á Siglufirði og á Sauðárkrók hjá Frumherja, en þær eru eyðilagðar.
Ég þurfti því að panta mér nýjar plötur og því mun bíllinn bera númerið HÖ-443 héðan í frá.

Annars er lýsingin á honum svona....

BMW 518i E28
Nýskráður 17.09.1986 á Íslandi.
Framleiddur í maí 1986.
M10B18 mótor
Ekinn 332.000 km
Beinskiptur
Blár að lit og liturinn heitir Saturnblau

Aukabúnaður:
Samlæsingar
Höfuðpúðar að aftan

Bíllinn hefur einhvern tímann verið með krók samkvæmt skráningunni á honum.
17.10.1992 Tengibúnaður
En hann er amk horfinn af honum í dag. Synd því það er snilld að vera með krók :wink:

Og svo auðvitað saga og myndir úr ferðalaginu.....
Við fórum með langferðabíl frá Reykjavík til Siglufjarðar,,,,og keyrðum svo bílinn bara heim.
Ég var nokkuð hræddur um að hann myndi ekki þrauka það alla leiðina til Keflavíkur frá Siglufirði (500km),
þar sem hann hafði staðið ónotaður í 3 ár á Siglufirði.
Tók með mér allskonar varahluti og verkfæri og var nánast tilbúinn í hvaða bilun sem var á leiðinni :lol:
Tók einnig með mér 4 ný vetrardekk þar sem ég treysti ekki dekkjum sem hafa staðið svona lengi.
Allt gekk samt að óskum og ferðin heppnaðist 100%.
Ég byrjaði á að renna úr Keflavík kl 7:30 til að sækja frænda minn sem kom með mér.
Lögðum upp frá Reykjavík með langferðabíl kl 8:30 og vorum komnir á Siglufjörð rétt rúmlega 15:00.
Þá tók við að koma bílnum á dekkjaverkstæði og skella undir hann nýju dekkjunum.
Af einhverjum ástæðum þurftum við að bíða í klukkutíma á meðan það var verið að umfelga bílinn. :shock:
Allavega þá vorum við tilbúnir á nýjum dekkjum og með fullan tank af bensíni kl 18:00
Lögðum þá af stað frá Siglufirði og vorum komnir í Reykjavík aftur kl 23:00, og ég svo til Keflavíkur 23:45.
Ferðalagið mitt tók því 16 klukkutíma frá Keflavík -> Siglufjörður -> Keflavík :D


Image
Hér erum við komnir á Hofsós og stoppuðum þar í smókpásu.
Ferðafélaginn minn var frændi minn hann Guðjón :)

Image
Verslunin á staðnum ásamt seinni bílnum sem við tókum frá Varmahlíð -> Sigló.

Image
Meira frá Hofsós.....

Image
Að mér sýndist, stærsta gatan í bænum :lol:

Image
Hin gatan á Hofsósi :lol:

Image
Hér erum við svo komnir á Sigló og bíllinn inn á dekkjaverkstæði.
Felgurnar voru vel fastar á og þurfti að lemja þær af með gúmmíhamri innan frá :lol:

Image
Image
Dekkjaverkstæðið og skoðunarstofa Frumherja eru í sama húsi, inn um dyrnar sést bremsuprófarinn á gólfinu, rétt fyrir framan gryfjuna.

Image
Bíllinn klár á nýjum dekkjum, 195/60 R 14.

Image
Image

Daginn eftir í Keflavík,,,,eftir fyrsta þvott á bílnum.
Bíllinn kominn í faðm bræðra sinna í E28 fjölskyldunni :lol:
Image
Image
Image
Image
Image

Á næstu dögum mun ég laga það litla sem ég hef tekið eftir að sé að honum.
1. Pústið er farið í sundur eða amk komið gat í það við miðju undir honum.
2. Gormur vinstra megin að aftan er brotinn
3. Aðalljóskerið vinstra megin að framan er brotið.
4. Vantar í hann útvarp :lol:

Ég á alla varahlutina til í skref 1-4 hér að ofan, auðvitað,,,,,,,

Svo skoðun og þá kemur í ljós hvaða framtíð þessi bíll á :thup:
Last edited by srr on Sat 09. Jan 2010 01:48, edited 1 time in total.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby gstuning » Thu 17. Dec 2009 17:55

Það sem þér dettur í hug.

:thup:
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby Mazi! » Thu 17. Dec 2009 17:57

haha þú ert magnaður :D
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby srr » Thu 17. Dec 2009 18:08

Já btw, þá er þetta tíundi E28 bíllinn sem ég eignast og þann fyrsta eignaðist ég bara fyrir 3 árum :shock:
Núna á ég 5 þeirra ennþá svo það er augljóst að ég á bágt með að láta þá frá mér :lol:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby Axel Jóhann » Thu 17. Dec 2009 18:18

Til hamingju, lýtur þokkalega út svona blautur. :lol: 8)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby ömmudriver » Thu 17. Dec 2009 20:01

Issss marr, menn bara dissandi Hofsós og fara á Siglufjörð og taka bara mynd af verkstæðinu :thdown:

En innilega til hamingju með bílinn :thup:
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby Einarsss » Thu 17. Dec 2009 21:46

:thup: þú ert vel klikkaður skúli .. og mér líkar það vel :D
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby srr » Fri 18. Dec 2009 01:12

einarsss wrote::thup: þú ert vel klikkaður skúli .. og mér líkar það vel :D

Einhver verður að vera það :D

ömmudriver wrote:Issss marr, menn bara dissandi Hofsós og fara á Siglufjörð og taka bara mynd af verkstæðinu :thdown:

En innilega til hamingju með bílinn :thup:

Sorry, ég var svo stressaður að leggja af stað frá Sigló að ég tók engar myndir.
Svo var farið að dimma of mikið að myndir á heimleiðinni voru off líka :S
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby birkire » Fri 18. Dec 2009 01:18

málaðu bara alltl nema hurðarnar hvítar þá er hann í stíl við húsið og skúrinn
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby ingo_GT » Fri 18. Dec 2009 01:19

Þú ert nett klikkaður í hausnum :lol:

Þessi samt virðist vera heillegur á að setja annan skemtilegari mótor ofan í eða hafa þetta svona orginal ? :)
Bmw e36 323 Touring M-tech

Seldir
3 e39 523ia-540ia
8 e36 316-318-318is-320-325
2 e30 316-325
ingo_GT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2371
Joined: Wed 23. Jul 2008 02:26
Location: Í skúrnum eða á hlið

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby srr » Fri 18. Dec 2009 01:22

ingo_GT wrote:Þú ert nett klikkaður í hausnum :lol:

Þessi samt virðist vera heillegur á að setja annan skemtilegari mótor ofan í eða hafa þetta svona orginal ? :)

Vá ég var ekki einu sinni kominn með svona djúpar pælingar fyrir hann :lol:
Stórefast um að hann fái aðra vél.....

birkire wrote:málaðu bara alltl nema hurðarnar hvítar þá er hann í stíl við húsið og skúrinn

Haha það væri kúl :D
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby Siddibmw7 » Fri 18. Dec 2009 02:17

gott að hann er kominn í góðar hendur :D
BMW E34 540i

----------------------
Sigurður Þór
Siddibmw7
Kassabílstjóri
 
Posts: 207
Joined: Fri 06. Feb 2009 18:45
Location: Here and there

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby ingo_GT » Fri 18. Dec 2009 19:00

srr wrote:
ingo_GT wrote:Þú ert nett klikkaður í hausnum :lol:

Þessi samt virðist vera heillegur á að setja annan skemtilegari mótor ofan í eða hafa þetta svona orginal ? :)

Vá ég var ekki einu sinni kominn með svona djúpar pælingar fyrir hann :lol:
Stórefast um að hann fái aðra vél.....


birkire wrote:málaðu bara alltl nema hurðarnar hvítar þá er hann í stíl við húsið og skúrinn

Haha það væri kúl :D


Haha jæja ok :lol:
En er hann ekkert riðgaður á botninnu ? :)
Bmw e36 323 Touring M-tech

Seldir
3 e39 523ia-540ia
8 e36 316-318-318is-320-325
2 e30 316-325
ingo_GT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2371
Joined: Wed 23. Jul 2008 02:26
Location: Í skúrnum eða á hlið

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby Geysir » Sat 19. Dec 2009 12:18

Er búið að kíkja með þennann í skoðun?

Var að missa mig þegar ég sá auglýsinguna, langað svo að stökkva á þennann. Var bara of hræddur.

Ef þig langar að selja að þá endilega láttu mig vita. :thup:
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.

Re: E28 518i 1986 - Saturnblau

Postby srr » Sat 19. Dec 2009 15:59

Geysir wrote:Er búið að kíkja með þennann í skoðun?

Var að missa mig þegar ég sá auglýsinguna, langað svo að stökkva á þennann. Var bara of hræddur.

Ef þig langar að selja að þá endilega láttu mig vita. :thup:

Nei ekkert komist í skoðun ennþá,,,ætli það verði ekki á mánudag/þriðjudag.

Hann verður mjög líklega til sölu eftir veturinn, finnst það svona líklegast.
Það eru nokkrir á lista hjá mér sem hafa forkaupsrétt,,,þú ert einn af þeim :santa:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Next

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 55 guests