Vandræði á bensínstöð

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby IceDev » Wed 16. Dec 2009 01:56

Leggðu eina krónu inn á reikninginn og tjékkaðu hver eigandi af þeim reikning er :P

Paste-aðu svo hingað ef þetta sé á einkanafni :twisted:
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby SteiniDJ » Wed 16. Dec 2009 02:42

Kannski er þetta bara vinur þinn að fíflast í þér, því að keyra burt með slönguna í er alveg broslegt. :)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby dabbiso0 » Wed 16. Dec 2009 02:51

IceDev wrote:Leggðu eina krónu inn á reikninginn og tjékkaðu hver eigandi af þeim reikning er :P

Paste-aðu svo hingað ef þetta sé á einkanafni :twisted:

Það er til svolítið sem kallast kennitöluuppfletting :alien:
Toyota Rav4 '97 "Special" Seldur :D
e39 530d touring sport 2003 - ///M-(aður) - Seldur :(
dabbiso0
Getawaybílstjóri
 
Posts: 584
Joined: Thu 25. Dec 2008 09:22

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby -Hjalti- » Wed 16. Dec 2009 02:55

SteiniDJ wrote:Kannski er þetta bara vinur þinn að fíflast í þér, því að keyra burt með slönguna í er alveg broslegt. :)


Búin að tékka á númerinu sem sendi smsið og þetta er einkasími stöðvarstjórans. Ekkert tengt N1 að neinu leiti
00' E38 750i
-Hjalti-
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1332
Joined: Wed 09. May 2007 20:41

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby Maggi B » Wed 16. Dec 2009 03:18

Mér sýnist þetta ætla að vera jólaspennusagan í ár. Hvað gerir hjalti í dælumálunum, Heldur stöðvarstjórin vegleg jól. fylgist með í næsta pósti af

HAUSLAUSA SLÖNGUMÁLINU
User avatar
Maggi B
Getawaybílstjóri
 
Posts: 952
Joined: Tue 03. Feb 2004 05:08
Location: í hjólförum

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby Grétar G. » Wed 16. Dec 2009 03:28

Maggi B wrote:Mér sýnist þetta ætla að vera jólaspennusagan í ár. Hvað gerir hjalti í dælumálunum, Heldur stöðvarstjórin vegleg jól. fylgist með í næsta pósti af

HAUSLAUSA SLÖNGUMÁLINU


HAHAHA ! Ert þú dottinn í jólaglöggið :lol:
E30 M20B25 TÚRBÓ
E36 ///M3 Daytona Violet
E65 735i LOADED
Range Rover Sport Supercharged
Yamaha YZF R6 '07
E39 ///M5 & Evo V & E60 545i & 300C SRT-8 (Seldir)
User avatar
Grétar G.
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2287
Joined: Tue 13. May 2008 01:10
Location: Ghettó BRH

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby fart » Wed 16. Dec 2009 09:09

Er ekki starfsmannafélagið bara að safna fyrir ferð til Svíþjóðar?
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby Gunnar Þór » Wed 16. Dec 2009 09:37

fart wrote:Er ekki starfsmannafélagið bara að safna fyrir ferð til Svíþjóðar?


Bwahahaha - á samyrkjbú í Lundi?
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby Zed III » Wed 16. Dec 2009 09:52

fylgir sögunni hvernig þú átt að borga þetta ?
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby ///M » Wed 16. Dec 2009 10:26

Ég skil ekki, hann segir í sms-inu að það sé reikningur hjá þeim?

Ferðu ekki bara og spjallar við þennan gaur og bendir honum á að þetta sé innheimt frá tryggingunum?

Miðað við að hann sendi sms virðist þetta vera algjör auli, mætir bara og segir honum hvernig málin standa, skilur eftir símanúmer og segir yfirmanninum hans að hafa samband ef þetta er eitthvað óskýrt :)
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby Misdo » Wed 16. Dec 2009 17:24

ég myndi ekki taka mark á þessu nema ég fengi senda rukkun í pósti heim stíluð á N1 eða einhverja innheimtu

senda sms er bara dæmi um að maðurinn hefur ekki haft það í sér að hringja í þig
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby Schulii » Wed 16. Dec 2009 20:13

Ég held að þetta sé bara forstjóri Kassagerðar Reykjavíkur* að nota sjúka leið til að stela sér peningum!
Þú ert að kaupa af þeim vöru og gerir líklega fyrir hundruði þúsunda á ári. Að halda að afþví þú skemmdir óvart dæluna lítillega að þú eigir að punga út pening fyrir því er álika fáránlegt og ef ég myndi skemma lítillega innkaupakerru frá Bónus þegar ég er að ýta henni í búðinni og fengi svo sms frá verslunarstjóranum þar sem hann biður um millifærslu á einhvern reikning fyrir kerrunni!

Ég held að þú ættir að ganga með þetta eins langt og hægt er og jafnvel tala bara við lögregluna. Leyfðu okkur endilega að fylgjast með málinu :)


*semsagt mega pappakassi
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby ///M » Wed 16. Dec 2009 20:19

Eru þið ekki aðeins að missa ykkur?

Honum er sagt að það sé reikningur handa honum á stöðinni. Hann fékk ekkert sms þar sem honum var sagt að milli færa á einhvern einkareikning eða senda cash í pósti.

Augljóslega sendir hann þetta úr einkasíma, það er ekki 2007 - hvað helduru að einhvern stöðvarstjóri úti á landi fái gsm síma frá fyrirtækinu :lol:

Ef svona staða kemur upp þá fer maður einfaldlega og ræðir málin, ef niðurstaðan er ekki ásættanleg þá talar maður við yfirmann stöðvarstjórans eða fer með málið fyrir dómstóla.
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby SteiniDJ » Wed 16. Dec 2009 22:06

///M , það er reikningur á borði hjá mér. Ef þú borgar ekki, þá siga ég lögreglunni á þig.

Þetta er álíka fáranlegt. :?
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Vandræði á bensínstöð

Postby ///M » Wed 16. Dec 2009 22:44

SteiniDJ wrote:///M , það er reikningur á borði hjá mér. Ef þú borgar ekki, þá siga ég lögreglunni á þig.

Þetta er álíka fáranlegt. :?


öööö er ekki í lagi með þig? Þetta á sér ekkert sameiginlegt :lol: :lol: :lol: :imwithstupid:
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 43 guests