Sælir.
Ég lenti í því leiðindar atviki að gleyma bensíndælu byssu í bensínlokinu þegar ég keyrði af stað frá sjálfsafgreiðslustöð N1 um daginn.
Það skeði nú ekki annað en það að byssan losnaði fra slönguni án þess að ég hafi séð nokkura skemmd á dæluni eða bílnum . Virtist vera eitthvað öryggi sem kúplaði byssuni frá slönguni við viss átök.
Ég ræddi við starfsmann á plani sem græjaði þetta saman á no time og sagði mér bara að koma mér í burtu.
Núna svo 10 dögum seinna fæ ég SMS! frá stöðvarstjóranum að það sé reikningur inná borði hjá þeim sem hljómi uppá 65.000kr og ég hafi frest til Fimmdagsins 17. Des að borga hann (2. daga frest )annars verði málið sent lögreglu. Eins og allir hafi þannig upphæð í öðrum rassvasanum svona rétt fyrir jól.
Eins og ég segi þá viðurkenni ég alveg mín mistök. Hinsvegar er það sem mér fynst frekar undarlegt er hótunar sms frá stöðvarstjóranum og upphæðin á reikningnum sem um ræðir.
Ég er búin að reyna að ná í toppana hjá framvæmdarsviði N1 núna í 2 daga án þess ná í gegn og kvarta yfir frammferði yfirmans þessa útibús N1 í Hveragerði.
Nú langar mig að spurja ykkur , hefur eitthver lent í álíka atviki og hvernig fór það mál. Nú hef ég talað við aðra sem tengjast öðrum sölustöðum og þar hafa þeir allir sagt að þeir séu tryggðir fyrir svona löguðu,
að þetta sé í raun bara hlutur sem þeir tæku á sig. Ekki halda það samt að ég sé að reyna að komast undan því að borga , fynst þessi upphæð bara alveg glórulaus. og þeir vilja ekki sýna mér frammá hvernig þeir fá þessa upphæð út.

