fart wrote:Það er í sjálfu sér ákveðin þversögn að setja "skynsamleg" fyrir framan Steranotkun.
Alkohólismi er viðurkenndur sjúkdómur sem herjar á stóran hluta jarðarbúa. Sumir fá sjúkdómseinkenin aldrei þó svo að þeir séu veikir fyrir, þar sem þeir ákveða að drekka ekki.
Reykingar eru mjög vanabindandi vímugjafi, sem sumum reynist nánast vonlaust að losa sig við.
Sterar eru efni sem líkaminn framleiðir, þ.e. kanski ekki sömu hormónin og menn sprauta í sig, en líkaminn framleiðir alla jafna rétt magn af þessum hormónum með hinum ýmsu líffærum. Líkaminn stjórnar þessu mjög nákvæmlega hjá nánast öllum er stundum fæðast menn, eða eldast þannig að líkaminn hættir að framleiða þessi hormón. Þá er mönnum gefnir sterar til að ná jafnvægi í líkamanum. Þetta vísa vöðvakallarnir alltaf í.. "já en læknar gefa stera" .. en það er stór munur á því hvort að það vantar olíu á mótorinn eða að yfirfylla af olíu.
Um leið og steranotkun hefst bregst líkaminn við. Fyrst fá menn aukinn kraft en svo dregur úr áhrifunum þar sem að líkaminn dregur úr framleiðslu sambærilegra hormóna til að reyna að ná jafnvægi. Oft gengur það illa þar sem menn setja í sig mikið magn, sem aftur framkallar bólur á bakið, breytingu beina o.s.frv. hjá karlmönnum, en dýpri rödd og óþægilegan hárvöxt hjá konum. Ef menn stunda langvarandi steranotkun, jafnvel í litlu mæli verður mjög erfitt fyrir líkaman að ná aftur jafnvæginu þegar steranotkun er loksins hætt.
Hjá þeim sem nota stera í miklu magni fer karllíkaminn að framleiða estrogen, sem verður til þess að þegar menn hætta er estrogen framleiðslan enn það mikil að mönnum vex brjóst. Þess vegna er ekkert óalgengt að maður sjái fyrrverandi vöðvabúnt með smáskurði undir geirvörtunum þar sem fituvefurinn hefur verið fjarlægður, nú eða karlmenn með hálfgerðar kvennmannsgeirvörtur (spennandi).
Önnur hliðarverkun steranotkunar, sem maður sér líka hjá fólki sem fitnar hratt og konum sem eru ófrískar, er húðslit. Þess vegna er mjög algengt að sjá vöðvakalla með slitna húð á bakinu (Lötsunum) og svo öxlunum. Slík slit fara aldrei (spennandi). Þetta gerist þar sem að innihaldið stækkar hraðar en húðin.
Ég hef aldrei notað stera og mun aldrei gera það, nema að lænisráði eða sem vopn gegn sjúkdómum sem gætu herjað á mig í framtíðinni, samt hef ég æft mikið um tíðina og er í góðu formi. Margir af mínum samferðarmönnum í ræktinni hafa notað þá og sumir bera þess ekki bætur, aðrir hinsvegar virðast hafa sloppið enda hættu þeir snemma.
Þessar upplýsingar sem ég hef hér að ofan koma ekki frá mér heldur félaga mínum sem er fyrrverandi sterabolti og svo lækni sem ég þekki. Þetta er engin opinber háð eða óháð könnun heldur staðreyndir úr lífi sterabolta og svo læknavísindi.
Ég get skilið að menn sem ætla að verða atvinnumenn í íþróttum/vaxtarækt, detti í þá gildru að nota stera, því að það er erfitt að keppa á ýmsum sviðum þar sem að það virðist allt vera löðrandi í þessu. Auðveldast er að nefna frjálsar íþróttir, kraftlyftingar, baseball og hjólreiðar. Auðvitað réttlætir það ekki málið, en það getur verið óþolandi að vera efnilegur í einhverju, en ná ekki viðurkenndum árangri eins og hinir, og því detta menn oft á sprautuna.
Hinsvegar er mér alveg óskiljanlegt af hverju menn vilja taka áhættu með eigin líkama með efni sem hefur möguleika á að skaða varanlega líkamann. Áfengi í hóflegu magni losnar úr líkamanum en ekki sterar. Sum vítamín eru vatnsleysanleg og því hættulaust að sturta í sig, önnur leiða til eitrunar þar sem þau eru vantsleysanlegt og á alls ekki að taka nema skortur sé á þeim í líkamanum. Sama gildir að sögn læknavísindana um stera.
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
xtract- wrote:Eru þá ekki rök þín ónothæf, þar sem þú ert klárlega á móti þessu? Það er enginn bara hlutlaus varðandi þetta.


arnibjorn wrote:Ég tók 5x5 120kg í réttstöðulyftu áðan á CrossFit æfingu. Þokkalega sáttur með það miðað við að ég hef aldrei lyft lóðum á ævinni![]()
Tók líka reyndar 5x5 60kg í push-jerk.... erfitt að taka meiri þyngd í því þegar maður hefur enga tækni. Aldrei tekið svona æfingu áður.
Misdo wrote:arnibjorn wrote:Ég tók 5x5 120kg í réttstöðulyftu áðan á CrossFit æfingu. Þokkalega sáttur með það miðað við að ég hef aldrei lyft lóðum á ævinni![]()
Tók líka reyndar 5x5 60kg í push-jerk.... erfitt að taka meiri þyngd í því þegar maður hefur enga tækni. Aldrei tekið svona æfingu áður.
hvernig er þetta crossfit að gera sig hef verið að pæla í að fara í þetta einhvað varið í þetta ?
Users browsing this forum: No registered users and 36 guests