Þannig er málið að ég þarf að færa bílinn fyrir fimtudaginn annars verður hann dreginn, og ég einfaldlega kem honum ekki í gang afþví hann er fastur í drive, erfitt að hreyfa stöngina en þó hægt að færa hana td í N og þá kemur kemur ljósið N við hliðiná skiptingunni en mælaborðið segir enþá að hann sé í drive. Bílinn er búinn að standa í ca 2 mánuði og var orðið frekar stíft að setja hann í gír þegar ég lagði honum, gæti þetta verið sjálfskipti barkinn eða eithvað annað kanski? TB menn vildu meina að þetta gæti verið eithvað annað og vildu skoða þetta en það er náttúrulega ekkert hægt að færa bílinn

, hefur einhver lent í einhverju svipuðu eða veit hvað er að? Þetta er E38 740, ekki steptronic.