Þetta voru svona dálítið Been there, done that ár... En þessi Skoda kerling var bara scary!
Síðan sá maður nú ýmislegt fleira og sama hjá félaga mínum sem vann hjá Esso.
Ég kom einu sinni að karli á Citroen XM, þar sem hann var búin að skell húddinu margsinnis en náði ekki að loka því, þannig að hann skellti bara fastar og fastar og þegar ég kom út þá sá ég fullt af litlum dældum í húddinu - þá hafði hann gelymt að setja olíulokið á eftir að hafa bætt á og það var það þröngt að hann var að skella á það og búin að rústa húddinu!
Ég lenti reyndar líka í því að gleyma að taka H4 halogen peru úr húddinu á Honda Civic, lokaði húddinu og peran fór í gegnum það án þess að brotna (kom semsagt GAT)

eina tjónið mitt samt
Esso félagi minn varð svo vitni af gaur á Porsche 924 eða 944 sem ætlaði að bæta á olíuna og afþakkaði alla aðstoð því það mátti engin snerta porkerinn, hann kom svo mjög skömmustulegur inn þegar hann uppgötvaði að hann hafði held olíunni á VATNSKASSAN!
Smá sögur svona, ég var í svo miklu stuði

Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road