Örugglega að núlla þetta í tölvunni.
Smá off topic en ég stóðst ekki mátið...
Einu sinni var ég að keyra frúarbílinn, sem var þá Skoda Fabia, frá Akureyri til Reykjavíkur að vetrarlagi. Uppi á Holtavörðuheiði kviknaði á vélarljósinu og að sjálfsögðu var stoppað til þess að skoða hvað gæti verið að. Ekkert var hægt að sjá í fljótu bragði svo að flett upp í handbókinni yfir bílinn og þar stóð að það mætti aka bílnum á næsta viðurkennda Skoda verkstæði (of course

) en þó ekki fara yfir 50 km. hraða.
Það tekur ansi langan tíma að keyra á 50 til Reykjavíkur frá Holtavörðuheiði...
Og hvað haldið þið að niðurstaðan hafi verið úr tölvunni hjá viðkurkenna Skoda verkstæðinu?
Jú "bílnum var of kalt" og villuboðin voru núllstillt.
Það var nú ekki hálka á heiðinni, um 4-5 stiga hiti og Skoda Octavia Turbo, sem var með í för, fékk ekki "samskonar kvef"
Fékk nokkrum vikum síðar aftur samskonar skilaboð, aftur var tengd tölva við og aftur var bíllinn "kvefaður" og skilaboðunum eytt.
Ég fór í framhaldinu og losaði frúnna við bílinn sinn. Nennti ekki að standa í veseni með bíl sem þoldi illa "kulda" á Íslandi
