Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Tue 10. Nov 2009 13:31

Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Fri 13. Nov 2009 14:26

Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Mon 16. Nov 2009 19:01

Snilldar pistill:

"Hér er ágætt bréf til upprifjunar hver er hinn sanni hrunkóngur Íslands:

Í byrjun október s.l. barst mér bréf frá Morgunblaðinu, undirritað af yður, í kjölfar þess að ég sagði upp áskrift minni að blaðinu. Ástæða uppsagnar minnar á blaðinu er sú ein, að mér misbýður verulega það dómgreindarleysi eigenda Morgunblaðsins að gera yður að öðrum tveggja ritstjóra þessa hingað til ágæta blaðs.
Í bréfi yðar buðuð þér mér eins mánaðar fría áskrift að Morgunblaðinu í október til þess að leggja mat á hvernig blaðið muni þróast undir yðar ritstjórn. Jafnframt óskuðuð þér í bréfinu eftir athugasemdum mínum um störf yðar, án þess að tilgreina sérstaklega við hvaða störf er átt.
Ég tek yður á orðinu og skal nú verða við hvoru tveggja; gera yður grein fyrir áliti mínu á störfum yðar fram til þessa og lýsa jafnframt skoðun minni á þróun blaðsins nú í október.

Störf yðar
Sem forsætisráðherra nutuð þér lengi vel trausts og virðingar þjóðarinnar og höfðuð sem slíkur á yður hið “landsföðurlega” yfirbragð, sem svo mikils er metið.
En við einkavæðingu ríkisbankanna urðu yður á afdrifarík mistök. Í stað þess að dreifa eignarhaldinu eins og lofað hafði verið, handstýrðuð þér bönkunum í hendur manna, sem ekki reyndust traustsins verðir. Með því lögðuð þér því miður grunninn að þeim hörmungum sem nú hafa dunið á íslenskri þjóð, og ekki sér fyrir endann á.
Í hlutverki Seðlabankastjóra gáfuð þér bönkunum að því er virðist lausan tauminn, og gátu þeir því óhindrað stækkað, safnað óheyrilegum skuldum og belgst út án þess að þeim væru nein takmörk sett. Þér stóðuð meir að segja fyrir því að afnema bindiskylduna í útibúum íslenskra banka erlendis. Afleiðingar þessa voru vægast sagt skelfilegar, og allir landsmenn þekkja nú af biturri reynslu þá afurð einkavina yðar í Landsbankanum sem Icesave nefnist, og þér hafið sjálfir lýst sem hinu mesta skemmdarverki.

Þótt þér segist nú oftsinnis hafa varað við yfirvofandi hruni bankanna þá samþykktuð þér samt gegndarlausar lánveitingar Seðlabankans til þessara sömu banka án haldbærra veða, og sætir það furðu í ljósi hinna meintu viðvarana yðar. Beint fjárhagslegt tap þjóðarinnar af þessum sökum er talið nema allt að 300 milljörðum króna að viðbættum vöxtum. Undir yðar handleiðslu varð Seðlabanki Íslands, þjóðarbankinn sjálfur, í raun gjaldþrota. Spyrja má í þessu samhengi, hvort sá sé meiri óreiðumaður sem sólundar því fé sem hann fær að láni, eða bankastjórinn sem veitir honum lánið úr sjóðum almennings, vitandi að það fáist að öllum líkindum aldrei greitt til baka.

Misheppnuð tilraun yðar til yfirtöku á Glitni olli dóminóáhrifum og hratt af stað því skelfilega hruni, sem landsmenn standa nú frammi fyrir sem blákaldri staðreynd. Setning hryðjuverkalaga á íslenskar eigur í Bretlandi hefur þar að auki verið rakin beint til orða yðar í Kastljósi um að skuldir íslenskra "óreiðumanna" erlendis yrðu ekki greiddar, og var viðtal þetta víða erlendis túlkað sem yfirlýsing Seðlabankans um að íslenska ríkið myndi ekki standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar.
Í kjölfarið hófst svo Icesave-deilan við Breta og Hollendinga, en þar getið þér ekki heldur þvegið hendur yðar af því að hafa sem Seðlabankastjóri í nóvember 2008 undirritað viljayfirlýsingu þar sem því var lofað að Íslendingar tækju ábyrgð á innlánsreikningum Landsbankans erlendis. Lyktir málsins hljóta því að hluta til að skrifast á yðar reikning.
Sem forsætisráðherra og síðar sem Seðlabankastjóri berið þér óumdeilanlega mikla ábyrgð á afdrifaríkum ákvörðunum, sem reynst hafa rangar og leitt hafa miklar hremmingar yfir íslenska þjóð. Því miður reyndust þér, þegar á hólminn var komið, alls ekki valda því bankastjórastarfi sem þér höfðuð áður úthlutað yður sjálfum.

Þróun blaðsins
Í ljósi ofangreindra stikla af starfsferli yðar eru efnistök Morgunblaðsins, eftir að þér hófuð þar störf, einkar ógeðfelld. Blaðið hefur á þessum stutta starfstíma yðar ítrekað reynt að vísa allri ábyrgð á Icesave klúðrinu yfir á núverandi ríkisstjórn, sem þó er í raun réttri einungis að sinna björgunarstörfum við erfið skilyrði. Auk þess hafa ýmsar tilraunir verið gerðar á síðum blaðsins til þess að „útskýra“ orsakir gjaldþrots Seðlabankans yður í hag, t.d. í Reykjavíkurbréfi þann 18. október.
Nýjasta útspil yðar til þróunar Morgunblaðsins, að breyta sunnudagsblaðinu í eins konar “kálf” með laugardagsblaðinu, er að mínu mati augljós tilraun til þess að gefa lesendum einu tölublaði minna á viku fyrir sama verð. Það vekur jafnframt athygli hversu blaðsíðum Morgunblaðsins hefur farið fækkandi að undanförnu. Eða stendur kannski til að lækka áskriftargjaldið vegna þessa?
Í stuttu máli er það mat mitt á þróun Morgunblaðsins á þessum fyrsta mánuði yðar í ritstjórastól að blaðið hafi í raun misst allan sinn fyrri trúverðugleika, einkum hvað varðar umfjöllun um bankahrunið og ýmis málefni sem tengjast fyrri störfum yðar. Ritskoðun af yðar hálfu gerir það einfaldlega að verkum að hvorki er lengur hægt að treysta fréttavali né efnistökum í fréttum blaðsins.
Það sjá það líklega flestir skyni bornir menn, hvílík reginfirra það er að gera yður að ritstjóra blaðs, sem ekki kemst hjá því á umbrotatímum í lífi þjóðarinnar að fjalla beint og óbeint um ofangreind störf yðar á opinberum vettvangi. Þér eruð einfaldlega engu skárri í nýjum „Moggafötum“ en keisarinn frægi í sögu H.C. Andersens, sem allir sáu að var nakinn nema hann sjálfur. „Moggafötin“ fela ekki fortíð yðar frekar en nýju fötin nekt keisarans. Er yður hér með kurteislega bent á það.

Biðjið þjóðina afsökunar
Með framgöngu yðar í opinberu starfi á undanförnum árum hafið þér því miður valdið íslenskri þjóð stórkostlegu tjóni. Þótt slíkt hafi eflaust ekki verið ætlun yðar, þá tala samt staðreyndirnar sínu máli. Hvort sem yður líkar það betur eða verr, þá eruð þér Hrunkóngur Íslands. Þann titil munið þér aldrei losna við, hversu mjög sem þér reynið að ritstýra og hagræða sannleikanum í yðar þágu á síðum fyrrum „blaðs allra landsmanna“.
Það eru gömul sannindi og ný að hrokinn gerir menn smáa en auðmýktin stóra. Væri yður sæmst að horfast í augu við þátt yðar í hinu efnahagslega hruni Íslands og biðja þjóðina afsökunar á því sem að yður snýr í auðmýkt og iðrun hjartans. Yrðuð þér þá maður að meiri. Ég er sannfærður um að amma yðar hefði ráðlagt yður hið sama, væri hún enn á lífi.

Uppsögn mín á Morgunblaðinu stendur þar til þér víkið af velli sem ritstjóri blaðsins.

Reykjavík, 30. október 2009
Ingi Gunnar Jóhannsson, fyrrverandi áskrifandi Morgunblaðsins"
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Alpina » Mon 16. Nov 2009 19:20

Hehe,,

hvar eru nú besserwisserar íhaldsins
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Krónan ...

Postby Aron Fridrik » Mon 16. Nov 2009 19:34

vá boohoo.. :argh: :argh:

mesti væll sem ég held að ég hafi lesið.. alltaf eins og meginþorrinn af almenning hafi ekki spilað með og kallað alla dóna og fávita sem gerðu athugasemd..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Krónan ...

Postby Alpina » Mon 16. Nov 2009 19:39

Aron Fridrik wrote:vá boohoo.. :argh: :argh:

mesti væll sem ég held að ég hafi lesið.. alltaf eins og meginþorrinn af almenning hafi ekki spilað með og kallað alla dóna og fávita sem gerðu athugasemd..


Ekkert svona væni..

þið bláu og framsóknarsvikamyllann ásamt sóða-sollu og co,,,,, eigið algerlega heiðurinn að þessu

með DAVÍÐ fremstann meðal hálfvita
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Mon 16. Nov 2009 19:40

Alpina wrote:Hehe,,

hvar eru nú besserwisserar íhaldsins


Present and counted for.

Byrjum á þessu
:-({|=

Svo þetta

Þessi gaur vill bæði að Sí lánaði ekki bönkunum þegar allir seðlabankar heimsins jusu svoleiðis út lausafénu út á engin veð og eins að ekki hefði átt að taka yfir Glitni sem hefði þá verið sæmileg veðtaka (veit ekki alveg hvað hann vildi að væri gert). Ég leyfi mér einnig að efast að hann viti hvað bindiskylda sé, er bara að éta þetta upp eftir öðrum "álitsgjöfum"

Ekki gleyma því svo að íhaldið hafði aldrei bankamálaráðuneytið, og það var þeirra ásamt FME að gefa út heilbriðgðisvottorð á bankana. Það liðu ekki margir mánuðir frá því að FME gaf út jákvætt álagspróf á bankana þar til þeir hrundu. Tók DO ekki bara mark á því mati ?

Ég vill annars ekki verja kerfið eins og það var, svo illa fúið var það. Ég er bara orðin verulega fúll á því að það virðist vera það eina sem þessi vinstri grátkór getur komið með er að benda á fyrri tíð. Það er auðvelt að vera vitur eftir á og það er ódýrt að gráta bara yfir sögunni.

Kapítalismi kom okkur annars í þessa stöðu og hann er sá eini sem getur bjargað okkur úr henni.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby Aron Fridrik » Mon 16. Nov 2009 19:58

Alpina wrote:
Aron Fridrik wrote:vá boohoo.. :argh: :argh:

mesti væll sem ég held að ég hafi lesið.. alltaf eins og meginþorrinn af almenning hafi ekki spilað með og kallað alla dóna og fávita sem gerðu athugasemd..


Ekkert svona væni..

þið bláu og framsóknarsvikamyllann ásamt sóða-sollu og co,,,,, eigið algerlega heiðurinn að þessu

með DAVÍÐ fremstann meðal hálfvita


á þá bara að gefast upp og væla á fullu..

maður stendur upp, þurrkar af sér rykið og reynir aftur.. og lærir af mistökunum..

það sem þarf að gerast hérna er nýtt stjórnkerfi og henda þessu flokkakerfi.. þetta lið í flokkunum er allt alveg eins upp til hópa sama hvað stendur í merkina sem er nælt við jakkann þeirra..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Krónan ...

Postby Alpina » Mon 16. Nov 2009 20:11

Aron Fridrik wrote:
maður stendur upp, þurrkar af sér rykið og reynir aftur.. og lærir af mistökunum..

það sem þarf að gerast hérna er nýtt stjórnkerfi og henda þessu flokkakerfi.. þetta lið í flokkunum er allt alveg eins upp til hópa sama hvað stendur í merkina sem er nælt við jakkann þeirra..


Þetta er bara ekki nógu gott svar,,,,,,,

ef það á að ná í þessa bankakalla,, þá á einnig að gera æðstu stjórnendur þjóðarinnar ((er voru við völd)) ábyrga
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Krónan ...

Postby bjornod » Tue 17. Nov 2009 14:48

Er hægt að kaupa krónur í Þýskalandi og hvernig ber maður sig að?
bjornod
Kassabílstjóri
 
Posts: 126
Joined: Thu 11. Jan 2007 10:46

Re: Krónan ...

Postby Alpina » Tue 17. Nov 2009 16:59

bjornod wrote:Er hægt að kaupa krónur í Þýskalandi og hvernig ber maður sig að?


þetta á að vera hægt........
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Krónan ...

Postby fart » Tue 17. Nov 2009 18:45

Alpina wrote:
bjornod wrote:Er hægt að kaupa krónur í Þýskalandi og hvernig ber maður sig að?


þetta á að vera hægt........


Þú ferð ekki í neinn venjulegan banka og kaupir krónur. Krónur eru ekki gjaldmiðill lengur, enginn venjulegur banki selur eða afhendir krónur og síst af öllu seðla.

Það er auk þess í dag ekki hægt að koma krónum til Íslands og ólöglegt fyrir Íslendinga búsetta á Íslandi að eiga viðskipti með krónur utan Íslands.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby Alpina » Tue 17. Nov 2009 19:02

fart wrote:
Þú ferð ekki í neinn venjulegan banka og kaupir krónur. Krónur eru ekki gjaldmiðill lengur, enginn venjulegur banki selur eða afhendir krónur og síst af öllu seðla.

Það er auk þess í dag ekki hægt að koma krónum til Íslands og ólöglegt fyrir Íslendinga búsetta á Íslandi að eiga viðskipti með krónur utan Íslands.


Þetta er rétt sem Sveinn bendir á..

en það eru samt menn að braska með krónur erlendis


Þetta vissi ég reyndar ekki
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Krónan ...

Postby ///M » Tue 17. Nov 2009 19:09

Alpina wrote:
fart wrote:
Þú ferð ekki í neinn venjulegan banka og kaupir krónur. Krónur eru ekki gjaldmiðill lengur, enginn venjulegur banki selur eða afhendir krónur og síst af öllu seðla.

Það er auk þess í dag ekki hægt að koma krónum til Íslands og ólöglegt fyrir Íslendinga búsetta á Íslandi að eiga viðskipti með krónur utan Íslands.


Þetta er rétt sem Sveinn bendir á..

en það eru samt menn að braska með krónur erlendis


Þetta vissi ég reyndar ekki


Var gerðar breytingar á gjaldeyrishöftum um daginn og var þar m.a. bannað fyrir íslendinga að kaupa krónur erlendis og koma með þær til Íslands. Vissi reyndar ekki að það væri ólöglegt að eiga viðskipti með krónur erlendis...
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Krónan ...

Postby HAMAR » Tue 17. Nov 2009 19:41

Ég reyndi að verzla krónur erlendis fyrir ca. 6 mánuðum og fékk bara svörin ''why ?'' í bönkunum :lol:
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 72 guests