Aron Fridrik wrote:þetta er náttúrulega svo vitlaust að það eru ekki takmörk fyrir því.. það er eins og að þeir haldi að fólkið í landinu sé með alla peningana úr Icesave í vasanum..
líka annað dæmi
499.999 * 0,411 = 205499,589
500.001 * 0,471 = 235500,471
þetta þýðir að ef ég er með 2 krónum hærri laun heldur en t.d. Jón sem vinnur með mér út af því að ég fór einu sinni heim úr vinnunni 16:05 ekki 16:00 þá þarf ég að greiða 30þús meira í skatt..
það ætti að taka ríkistjórnina og lóga henni
Sannar enn og aftur að ríkistjórn á ekki að sitja á þingi, flokkakerfið virkar ekki og því er allt lamað hérna

án þess að ég ætli eitthvað að verja þessar skattahækkanir þá er þetta rangt reiknað hjá þér,
af fyrstu 250 þ.kr. á að vera tekinn 37,1% skattur og svo 41,1% af næstu 250 þ.kr. og svo 47,1% af rest þannig að dæmið verður:
250.000*0,371 + 249.999 * 0,411 = 195.499,6
250.000*0,371 + 250.000 * 0,411 + 1*0,471 = 195.500,5
sem gerir mun upp á tæpa krónu