Ónefndur kraftslimur lenti einhverntíman í svona. Hann var að ferja félaga sinn austur fyrir fjall eftir ansi hraustlegt djamm. Áður en þeir lögðu af stað hafði hann brýnt fyrir vininum að láta vita ef hann þyrfti að æla og það átti ekki að vera neitt mál. Á háheiðinni fer skrúfar félaginn niður rúðuna og byrjar að spýja. Einhvernveginn tókst kauða að hitta þannig að eitthvað fór út, eitthvað fór inn en góður slatti fór niður með rúðunni. Skammirnar heyrðust niður í Hveragerði og sunnudagurinn sem fór í þrif var víst ekki sá skemmtilegasti
