Þetta er 1991 Carrera4 og var flutt hingað til lands árið 2001 af íslendingi sem bjó í DE, eigandinn
sem ég keypti hann af hafði átt hann frá 2003 og ég er því að öllum líkindum fjórði eigandinn því
skv. smurbókinni var farið alltaf farið með hann á sama verkstæðið þangað til íslendingurinn keypti hann.
Þetta er alveg fínasta eintak, algerlega original í Slate Grey lit, liturinn er svolítið eins og ólíva,
þarft aðeins að smakka til að kunna að meta hann.
Ekinn 153 þús. sem verður að teljast hóflegt miðað við 18 ára gamlan bíl, þ.e. innan við 10 þús á ári,
notkunin er jöfn og það eitt og sér heillar mig mjög mikið.
Margir velta því eflaust fyrir sér hvað ég geri við Z4, ég veit það hreinlega ekki sjálfur. Það gæti verið
að ég selji hana nk. sumar. En mig sárvantar aukasæti og góðan "vetrarbíl"
Hér eru nokkrar myndir sem ég tók áðan.






Ég stefni að því að gera hann eins og um nýjan bíl væri að ræða..







