Nú er komið að okkur að hjálpa þeim sem hjálpa okkur sama hvað gerist!!!
Nú er sala Neyðarkarlsins í gangi og hvet ég alla til að kaupa allavega einn Neyðarkarl.
En við vitum hvað eldsneitisverðið er hátt og það er ekkert grín að reka bílaflotann, bátaflotann og öll önnur tæki sem þeir nota til að bjarga okkur.
Þeir fara út í öllum veðrum og við allar aðstæður, þegar Suðurlandsskjálftinn ver þá fór ég ásamt mörgum öðrum björgunasveitarmönnum frá fjölskyldum okkar út í óvissuna til að hjálpa fólki sem ég þekti ekki neitt og margir sem voru í hjálparstarfi á svæðinu þektu engan af þeim sem þurftu á hjálp að halda, fóru samt frá fjölskyldum sínum til að hjálpa fólki eins og þér og mér.
Ég hef þurft á hjálp að halda frá Björgunarsveit og vona ég að sveitungar þeirrar sveitar versli við sína sveit og að þú verslir við sveitina í þínu bygðarlagi.
ÞÚ GÆTIR VERIÐ NÆSTUR.
EINHVER NÁIN ÞÉR GÆTI VERIÐ NÆSTUR.
ÉG GÆTI VERIÐ NÆSTUR.
Hver veit??
Stöndum saman og verslum karlinn.
Hver karl skyptir máli.
Baráttu kveðja
Árni F
Bj Suðurnes.




