Var á leiðinni í skólann áðan og varð bensínlaus í smiðjuvegsbrekkunni, náði að skrölta upp í 1.gír og þar sem það lekur olía meðfram ventlalokspakkningunni niður á pústgreinar rauk massívt úr bílnum þegar ég komst upp á bensínstöð... varð frekar smeikur við það allt saman.
Hringdi mig bara veikan, lullaði heim og fór að rífa ventlalokið af.
Aftasta (/fremsta? allavega þetta næst hvalbaknum) kertið var drukknað í olíu... náði alveg upp að brúnum liggur við.
Annars lítur allt mjög vel út undir ventlalokinu, strax búinn að sjá hvar pakkningin lagðist ekki rétt niður.
Er svo að hugsa um að mála ventlalokið svart í leiðinni.
Síðan þarf ég að fara að reyna að snitta gat fyrir swaybar festingarnar, gengur ekki að hafa það laust.
Ætla með bílinn í heilsprautun eftir áramót, held að það sé orðið nokkuð klárt.
Var að hugsa annaðhvort sami litur (brilliant rot) eða imola, en ég er eiginlega bara orðinn hrifnari af brilliant rot heldur en imola..







