E36 323iA coupe// Nýjar felgur

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

E36 323iA coupe// Nýjar felgur

Postby JohnnyBanana » Wed 04. Nov 2009 21:53

Hérna er bimminn minn, ég keypti hann í maí síðastliðinn og er fyrst núna að nenna að búa til svona þráð um hann. Þessi var í frekar dapurlegu ástandi þegar ég rakst á hann fyrst, var búinn að vera óganghæfur, fastur einhversstaðar í breiðholti og búinn að standa þar í fjóra mánuði. GRÚT skítugur, jafnt að utan sem að innan, allur útataður í fuglaskít og á sprungnu dekki. Það var deginum ljósara að þessi hafði ekki fengið neina ást í þónokkurn tíma, enda í vörslu kvenmanns á þessum tíma ;)

ég setti mig í samband við eiganda, sem var kunningi föður míns sem var heppilegt og fékk ég bílinn á MJÖG sanngjörnu verði gegn því að ég drægi hann uppí TB og kæmi druslunni í gang. Þar var gert við hann fyrir um 50þúsund, skipt um hinar ýmsu fóðringar og fleira og borgaði seljandi það, sem er barílagi. Næst á dagskrá var að sjálfsögðu olíuskipti og skoðun, sem var lítið mál fyrir utan filmur í hliðarrúðum og óvirkt tengi í dráttarkrók, bæði hlutir sem ég var meira en glaður tilbúinn að losa af bílnum. filmurnar voru algjör leiðindi þó.

Síðan þá hef ég bara verið að dútla ýmislegt í bílnum, aðalega minimodd þar sem ég er námsmaður og á enga turbopeninga. Bíllinn hafði greinilega einhverntíma lent í tjóni vinstra megin, hann var allavega með sitthvor nýru, sitthvoran kastara og sitthvor framljós. framljósin pirruðu mig hvað mest þar sem hægra var projector og vinstra var svona oldschool týpan. ég fann mér allavega nýtt vinstra framljós á klink og fór svo í TB og fékk þar facelift framstykki með nýrum á góðu verði, stykkið var einnig heppilega í nákvæmlega sama lit og bíllinn. Já, svo keypti ég einnig í bandaríkjunum K&N 57i síuKIT, ekki einhvern svepp sem sumir setja framan á MAFinn sinn. ss með hitaskildi og meððí (ég nenni engu skítkasti á K&N draslið btw). Og síðan kom skemmtilegasta en vesenmesta moddið hingað til, M50 manifold. Það virtist eins og bíllinn bara neitaði að taka við þessu moddi, td hafði húddlæsingin verið í alveg fínu lagi þangað til að ég fór með hann niðrí skúr og ætlaði að byrja á þessu, og þá ákvað hann að læsa bara húddinu. ég komst yfir þá hindrun en þá birtust bara 15 aðrar í staðinn, þetta tókst svo að lokum tveimur vikum seinna þökk sé góðri hjálp frá Róbert crashed. En þá að sjálfsögðu kom lokahindrunin, sjálfskiptingin fór í limp mode, ss fastur í þriðja. 26þúsund króna viðgerð uppí Eðalbílum og það eina sem var að var brotinn pinni í tölvutengingar læsingunni. frekar neyðarlegt. En djöfull virkar þetta manifold! bíllinn snarbreyttist.

Nóg af texta, hérna eru nokkar myndir.
Image
Image
ignorið varadekkið, einhverjir krakkagemlingar settu nagla undir dekkið mitt.
Image
Image
Image
Image

Hann er keyrður 260xxx og innréttingin er upprunaleg, fáranlega gott ástand á henni (lúkkar betur í persónu) og bara bílnum yfirhöfuð.
vélin var tekin upp fyrir einhverjum árum síðan fyrir einhverja hundraðþúsundkalla, því þáverandi eigandi keyrði á spýtudrumb útí sveit og mölvaði pönnuna og vélin beyglaði húddið og eitthvað bull. þetta sagði annar fyrrverandi eigandi mér sem ég hitti fyrir algjöra tilviljun á dekkjaverkstæði um daginn.

Næst á dagskrá eru allavega, LSD (stóð reyndar í einhverjum eldgömlum söluþræði á huga "driflæsing", ég er allavega ekki að finna fyrir því í akstri) nýjar felgur, ný fjöðrun, Mtech framstuðari, BEINSKIPTING! og svo er ég að spá í angeleyes annaðhvort í þessi ljós eða bara ný stykki, og 3000k xenon (hef yfirleitt óbeit á xenon en mér finnst 3000k og 4500k sleppa) Svo í framtíðinni þegar maður á turbopeninga þá má spá í því+nýja vél. Og síðast en ekki síst þá hef ég eftir miklar vangaveltur, ákveðið að halda þessu forláta búðarkerruhaldi. Ég nenni ekki að standa í brasinu sem tengist því að losna við þetta og ég held að hann eigi eftir að skána með nýjum felgum+lækkun+mtech.
Last edited by JohnnyBanana on Fri 16. Jul 2010 00:21, edited 3 times in total.
User avatar
JohnnyBanana
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Tue 16. Jun 2009 01:59

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby Fatandre » Wed 04. Nov 2009 22:01

Þessi er í lagi en þessi spoiler stingur í augun
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53
User avatar
Fatandre
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1870
Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby ValliB » Wed 04. Nov 2009 22:03

Það var mikið, var einmitt að furða mig á því um daginn að ég hafði aldrei séð þinn e36

Glæsilegur bíll,
en eitt sem ég myndi gera, og það er að skipta út þessum viðar/plast listum í innréttingunni
Svo það bara eitt að setja örlítið sportlegra stýri breytir innréttingunni til batnaðar

:thup:
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby JohnnyBanana » Wed 04. Nov 2009 22:04

Fatandre wrote:Þessi er í lagi en þessi spoiler stingur í augun

ég veit allt um það..
User avatar
JohnnyBanana
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Tue 16. Jun 2009 01:59

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby JohnnyBanana » Wed 04. Nov 2009 22:06

mymojo wrote:Það var mikið, var einmitt að furða mig á því um daginn að ég hafði aldrei séð þinn e36

Glæsilegur bíll,
en eitt sem ég myndi gera, og það er að skipta út þessum viðar/plast listum í innréttingunni
Svo það bara eitt að setja örlítið sportlegra stýri breytir innréttingunni til batnaðar

:thup:

Mtech stýri er draumurinn, ég á bara ekki 50þúsundkrónastýrispening :(
User avatar
JohnnyBanana
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Tue 16. Jun 2009 01:59

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby SteiniDJ » Wed 04. Nov 2009 22:21

Ég er að melta þennan spoiler afar vel, ekki taka hann af! 8) Stærri felgur munu samt réttlæta hann talsvert meira.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby JohnnyBanana » Wed 04. Nov 2009 22:34

SteiniDJ wrote:Ég er að melta þennan spoiler afar vel, ekki taka hann af! 8) Stærri felgur munu samt réttlæta hann talsvert meira.

jááá, ég ætla einmitt að halda honum eins og kemur fram í síðustu greininni.

en já ég fann fæðingavottorðið:
240 LEATHER STEERING WHEEL
243 AIRBAG FOR FRONT PASSENGER
305 REMOTE CONTROL FOR CENTRAL LOCKING
314 HEATED WINDSCREEN WASHER NOZZLES
320 MODEL DESIGNATION, DELETION
401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC
428 WARNING TRIANGLE
438 WOOD TRIM
473 ARMREST, FRONT
498 HEADRESTS IN REAR, MECHANIC. ADJUSTABLE
510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM
520 FOGLIGHTS
530 AIR CONDITIONING
556 EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY
658 RADIO BMW BUSINESS CD RDS
676 HIFI LOUDSPEAKER SYSTEM
801 GERMANY VERSION
915 BODY SKIN CONSERVATION, DELETION
User avatar
JohnnyBanana
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Tue 16. Jun 2009 01:59

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby x5power » Wed 04. Nov 2009 22:42

flottur litur á framstykkinu og nýrun! (átti að fara á minns) 8)
Image
x5power
Getawaybílstjóri
 
Posts: 962
Joined: Mon 07. Apr 2008 19:43

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby gardara » Thu 05. Nov 2009 00:27

x5power wrote:flottur litur á framstykkinu og nýrun! (átti að fara á minns) 8)


Pre facelift, eins og þú ert með núna, eru flottari 8)
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby JohnnyBanana » Thu 05. Nov 2009 00:40

gardara wrote:
x5power wrote:flottur litur á framstykkinu og nýrun! (átti að fara á minns) 8)


Pre facelift, eins og þú ert með núna, eru flottari 8)

kjeeeftæði :D
User avatar
JohnnyBanana
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Tue 16. Jun 2009 01:59

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby hjolli » Thu 05. Nov 2009 01:40

niiice er lika með svona nýru.. þau eru osom :D
mjer langar i þessar felgur...
Image
____________
BMW e60 545
Peugeot 306
Toyota Corolla
BMW e36 x3
Mazda 323
User avatar
hjolli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1141
Joined: Wed 29. Oct 2008 22:42

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby tinni77 » Thu 05. Nov 2009 02:17

Ert þú ekki í Borgó? allavega einn mjög svipaður E36 alltaf á planinu
BMW E30 325i Coupe
Image
User avatar
tinni77
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2822
Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Location: 112 RVK, E30 city

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby birkire » Thu 05. Nov 2009 03:26

4 coupar í borgó 8) þessi, guli, blái berio og svo einn fjólublár

þessi er svalur.. ég mundi samt prófa að taka vænginn af eina kvöldstund

setur hann ekkert aftur á eftir það :santa:
Last edited by birkire on Sun 08. Nov 2009 20:13, edited 1 time in total.
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby gardara » Thu 05. Nov 2009 08:27

Getur eflaust selt Árna spoilerinn
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: BMW E36 323iA coupe//pantherinn

Postby arnibjorn » Thu 05. Nov 2009 08:54

gardara wrote:Getur eflaust selt Árna spoilerinn

Haha þessi spoiler er kidstuff! Svo lítill að hann sést varla :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Next

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests