það er allt að gerast! það er bara svo mikið að gerast í vinnuni að maður verður aðeins að forganga! en staðan í dag er sú að allt er klárt til að swappa kraminu yfir, eg er aðalega að græja flækjurnar núna. og svo koma myndir!
jæja aðeins búið að modda! nú er rafgeymafestingin komin úr og m5 vatnskassa forðabúr komið í staðinn. var núna að klára að færa abs dæluna yfir í hægra hornið (undir þar sem rafgeymafestingin var).það koma myndir síðar!
Myndir af tómum vélarsal. Það er samt hellingur sem er eftir að gera svo nýja vélin fái það pláss sem hún þarf.
Bremsudælan sem er á leið í. Þessi kemur úr óþekktu módeli af bmw og er akkúrat passlega lítil til að ganga með nýju vélinni, það hefur þó ekki slæm áhrif á bremsugetu.
ABS kerfið komi úr
Eitt stykki ABS unit
ABS kerfið (og forðabúrið fyrir vatnskassan) komið á sinn stað, bara eftir að leiða pípur á rétta staði.
Flækjurnar sem er búið að punkta, verða fullsoðnar af fagmanni þar sem þær eru fylltar af gasi svo suðan verði slétt að innan
Stýrisstöngin þarf að fara inn á milli eða í gegnum flækjurnar. Það er eina leiðin til að koma stönginni fyrir, en þó þarf að mixa stöngina helling og færa maskínuna.
Benedikt Guðmunds. 615-2630 The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01