Langaði bara að benda á eftirfarandi
Quote:
Rannsóknaraðgerðir lögreglu og annarra stjórnvalda
Samkvæmt 2. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar er aðeins heimilt að gera líkamsrannsókn og leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum ef að fyrir liggur dómsúrskurður eða sérstök lagaheimild. Það sama gildir um rannsókn á bréfaskiptum og öðrum tjáskiptum manna sem talin eru í ákvæðinu.
Þið verðið að fá á hreint hvaða rök lögreglan hafði til grundvallar þessari húsleit, ef þessi rök eru ekki fullnægjandi að ykkar mati þá farið þið í hart við lögguna. Ef að til er gildur leigusamningur milli ykkar og húseiganda þá er það á ykkar könnu að sækja málið en ef enginn leigusamningur er til þá er það mál húseigandans...
Og ef þið ætlið í hart þá verðið þið að fá þann sem sá lögguna vera að brjótast inn til að gefa skýrslu um atvikið og fá stimplaða útprentun frá ykkar símafyrirtæki á símtölunum sem fóru á milli ykkar og lögreglunnar. Aðeins stimpluð og vottuð gögn eru tekin gild í svona málum gegn lögreglunni... og já GÓÐAN lögfræðing
