GT og X1

Sástu flottan BMW og vilt leyfa okkur hinum að njóta líka? Póstaðu því þá hér.

GT og X1

Postby bebecar » Wed 07. Oct 2009 12:34

Ég skoðaði þessa tvo í fyrradag niðrí umboði...

Mikið rosalega finnst mér hönnuninni hafa farið aftur með þessu GT...
Image

Þetta er þvílíkt bólgið og stórt eitthvað og hlutfall hjólaskála/felgna/yfirbyggingar verulega skakkt og nýrun alltof stór að mínu mati. Hvernig eru menn að meðtaka þetta? Nýi Z4 er hinsvegar betri en ég átti vona á... en sá gamli samt mun flottari að mínu mati.

Hið sama fannst mér með X1, ferlega ó-BMW-legt eitthvað...
Image

Eru E60 og E90 síðustu elegant bimmarnir í bili?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: GT og X1

Postby jens » Wed 07. Oct 2009 12:36

Verð að vera sammála þér Ingvar, finnst nýju bílarnir svo úr hlutföllum og allt of mikið chrome.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Re: GT og X1

Postby SteiniDJ » Wed 07. Oct 2009 14:04

Mér finnst GT algjör snilld. Þetta er öðruvísi og um leið hönnun sem virkar. Mér finnst nýrun á öllum nýjum bimmum of stór, en það venst örugglega með tímanum.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: GT og X1

Postby gunnar » Wed 07. Oct 2009 16:15

Djöfull er þetta ógeðslegt!!! :argh: :argh:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: GT og X1

Postby SteiniDJ » Wed 07. Oct 2009 16:20

En þetta virðist þó vera svolítið trend með nýja Bimma. Menn fussa og sveia útaf nýju módeli, en eftir smá tíma þá verða allir sáttir. Mér finnst X1 ekkert augnayndi, en GT er bara í lagi og sýnist mér þarna vera kominn bíl sem á eftir að keppa við Panamera.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: GT og X1

Postby bebecar » Wed 07. Oct 2009 16:43

Panamera er MUN rennilegri bíll og miklu lægri að sjá (hef ekki tékkað tölurnar)...

GT-inn er alveg skelfilega bosmamikill og groddaralegur.

Það er eitthvað við þessa hönnun sem fer í mig; ég gæti nefnt ljósin; þau eru orðin svo rosalega stór (enda hefur bíllinn vaxið líka), minnir mig á afturljósin á LC200 sem eru á stærð við útigrill; nýrun eru alveg út úr korti; rúðurnar eru orðnar of lágar og hurðarnar of háar sem þýðir að það er of mikið "efni" á milli þar sem brettið og dekk mætast og svo upp að gluggalínu eða húddlínu (of þykkur), það sést á sílsum, og sléttu flötunum á brettunum hvað bíllinn er í raun stór því þetta er orðið 2-3 sinnum stærra en t.d. síls var á bíl fyrir bara 10 árum síðan. Hlutfallslega eru felgurnar of litlar og hjólaskálarnar líka - samsvarar sér illa við yfirbygginguna; þetta lítur út eins og lágbyggður jepplingur án þess að vera slíkur.

X1 er skárri að mörgu leiti, hann finnst mér bara almenn ljótur en hann samsvarar sér mun betur samt. Svo er ég sammála Jens með of mikið króm og burstað stál...

Sjáið bara hvað Audi er að gera t.d. til samanburðar:

Image

Fullkomlega elegant bíll sem samsvarar sér vel... og það á eiginlega við um allt lineöppið í dag.

Þetta er svo mikil synd fyrir BMW finnst manni því bílarnir hafa heldur betur klifrað hátt á áreiðanleika skalanum og hafa bara verið að gera góða hluti síðustu 5 árin í það minnsta.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: GT og X1

Postby Dóri- » Wed 07. Oct 2009 17:01

Image
audi q5
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Re: GT og X1

Postby SteiniDJ » Wed 07. Oct 2009 17:15

bebecar:

Audi-inn sem þú vitnar í er virkilega fallegur en mér sýnist hann vera í allt öðrum klasa en 5 Series GT. Í raun minnir GT mig helst á sedancoupe útgáfu af X6. Mjög svipað body og sama 2+2 setup. Fyrir þann tilgang sem bílinn er hannaður, þ.e. í langferðir (sem eru ófáar í Þýskalandi), þá held ég að þetta muni vera snilldar bíll - eða Ultimate Driving Machine, eins og þeir vilja kalla þetta. Þetta er örugglega enginn fjölskyldubíll, hann er of "lítill" í það, þannig ég held að markhópurinn séu viðskiptamenn sem þurfa að þónokkuð að ferðast og vilja fá bíl í samræmi við það.

Í mínum huga er þetta snilldar bíll, bæði útlits- og hönnunarlega séð.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: GT og X1

Postby gunnar » Wed 07. Oct 2009 19:35

Það verður að viðurkennast að Audi menn hafa verið að koma með alveg slatta af mjög áhugaverðum bílum núna á seinustu misserum. Virkilega hrifinn af mörgum þeirra nýjustu týpum.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: GT og X1

Postby JOGA » Wed 07. Oct 2009 22:18

Sammála þessu með Audi-ana.

Farinn að snúa mér óeðlilega mikið eftir flottum A5 Coupe. Sá einn hvítann um daginn alveg sjóðandi flottan :drool:
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: GT og X1

Postby Dr. Stock » Wed 07. Oct 2009 23:47

Líst vel á þennan nýja GT. Tel hann muni venjast vel. Þessi bíll er byggður á undirvagn 7-unnar og því með sama bil milli hjóla og væntanlega þá innanrými. Hlerinn að aftan finnst mér elegant og flottur, ný hönnun þar á ferð. E60 fannst mörgum ( þar á meðal mér ) ærið sérstakur og voru ekki að fíla hann. Það er allt annað upp á teningnum í dag. Sama er að segja um E90. Held að stóru nýrun venjist líka eins og svo margt annað. Verð þó að viðurkenna að ég hef ekki enn séð GT inn í návígi, því miður.
Image
BMW X1, 18d, 2014 (E84)
BMW X5, 4,8i, 2007 (E70)
BMW 635CSi,1986 (E24)
BMW 316,1987 (E30)
BMW 530Xi Touring, 2006 (E61), seldur
BMW X5, 2007, (E70), seldur
BMW X5 4,4i, 2004 Seldur
User avatar
Dr. Stock
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 148
Joined: Wed 15. Nov 2006 21:58
Location: Hafnarfjörður

Re: GT og X1

Postby kalli* » Fri 09. Oct 2009 23:52

Sammála Steina með nýrun, ekki með að bílllinn sé flottur samt :)

Og flestir nýju Audi bílarnir eru orðnir virkilega fallegur og ánægður með hönnunin á þeim, hversu mikill BMW aðdáandi sem ég er, frekar tæki ég A5 yfir þennan :oops:
Image
'01 e46 320Ci
Seldir - '96 e39 540i | e36 M50B25 Compact | 99' BMW 316i Compact | '91 e34 520i
User avatar
kalli*
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2687
Joined: Sun 29. Mar 2009 14:06

Re: GT og X1

Postby Bartek » Sun 11. Oct 2009 15:53

woow hvað þetta er ljotir bilar... 8)
e34 "M5" Nauticgrun
BMW X5 4,4i sport
e34 525T TDS Brokatrot
e32 740i Calypsorot
User avatar
Bartek
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2656
Joined: Sun 01. Mar 2009 22:09
Location: Keflavik


Return to Áhugaverðir bimmar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests