Góðan.
Jæja, nú er ég ekki sáttur. Ég var að vinna hjá Fosshótel. þann 18 september varð ég alveg FÁRVEIKUR og tók mér frí, þann 21.september var ég greindur með þessa svokölluðu svínaflensu, þannig ég var að taka mér viku frí frá vinnu vegna "smithættu".
Þann 22.september er ég rekinn fyrir að hafa ekki mætt í vinnu í 4 daga þó að hótelstjórinn vissi full vel hvað væri í gangi hjá mér!
Mér finnst þetta gruggugt þar sem ég hélt að það væri ólöglegt að reka starfsmann fyrir veikindi?
Svona eins og nokkrir vita þá er ég að eignast barn núna 25.okt, vegna þess er ég atvinnulaus og það gengur ekki! Ætti fyrir tækið ekki að borga mér þessa mánuði sem ég skrifaði undir samning fyrir ?
Er það löglegt að borga mér 128 þúsund krónur fyrir 273 vinnu tíma, bæði í dagvinnu, yfirvinnu OG næturvinnu!
Mig sárvantar hjálp við að fá að vita rétt minn .
MBK.
Kjartan Steinar Jónsson!



