Ekkert ITB, heddið verður opnað og unnið hérna í DK. Ég verð með 280/280 ás frá PPF ásamt ventlagormum og rockerörmum frá sama fyrirtæki. Flækjur verða keyptar (ekki viss hvaðan) og þær verða ceramic húðaðar, soggrein verður mátuð við hedd og unnin út frá því.
AFM verður hent í ruslið því ég ætla að runna þennan mótor via AlphaN.....já Sveinbjörn, ég ætla að fara með þetta út í öfgar og eyða €€€€€€€€ í þetta

fyrirmyndin kemur frá MM og þar á bæ eru menn að ná 230ps úr mótornum, þeirra dyno-bekkur er downrated um ca. 30%. Það er gert með vilja því að Jim vill frekar að hans kúnnar upplifi að þeir hafi fengið meira fyrir peninginn frekar en minna

hef spjallað talsvert við hann í gegnum síma og hann er óendanlega fróður um BMW mótora, þekkir M20 eins og handarbakið á sér.
Annars er smá update, tók klukkutíma í skúrnum en náði ekki að hífa sveifarásinn úr. Skortur á verkfærum og ofan á það skortur á verkfærum til að modda hin verkfærin

skítt með það, nægur tími. Sveifarásinn lítur hins vegar vel út og hvergi slit að sjá, gleður mig því það er auðveldara að selja óslitna parta. Ekkert merkilegt í þetta skiptið en reikna með að klára teardown á blokk í vikunni, þá kemur myndaflóð.


