Minniháttar update.
Kominn með bílskúr, mun skella króknum undir Touring á miðvikudaginn og fara með kerruna að sækja mótorinn og skutla honum inn í aðstöðuna. Fer svo næstu helgi til Svíþjóðar að sækja mótor-standinn fína og byrja svo smátt að rífa mótorinn í sundur. Það er búið að pólera sveifarásinn til að fjarlægja óhreinindi úr yfirborði leguflata, þarf þó að láta renna af auxiliary-shaft samkvæmt því sem MM segir. Er svo heppinn að þekkja rennismið sem tekur gjarnan bjórkassa sem greiðslu fyrir svona smotterí.
Innvolsið verður keypt frá Metric Mechanics þ.e.a.s. allt frá höfuðlegum og upp að heddi, hedd og soggrein verður tekið í gegn hérna í DK og knastás, gormar, ventlar og rokker-armar verða keyptir frá PPF. Mun hugsanlega fara til USA að sækja dótið, dýrt að senda þetta (heavy tollar) og ég gæti þá vonandi labbað með þetta í gegnum tollinn án vandræða. Fyrir utan það að maður fengi þá að hitta Jim Rowe og skoða verkstæðið hjá Metric Mechanic

þvílíkt almennilegt fólk sem býðst til að sækja mig á völlinn og redda mér gistingu og svo skutla mér út á völl eftir heimsókn, mér að kostnaðarlausu. Reyni að koma innvolsinu heim sem fyrst svo ég farið að skrúfa og taka myndir

mín fyrsta vélar-upptekt og ég verð duglegur að taka myndir.
Annars var ég að klára olíuskipti á mótor og drifi, gírkassinn verður skveraður á morgun og fæ vonandi nýtt Guibo eftir helgina ásamt pakkdós aftan á gírkassa....þreytandi leki í gangi þar. Már fær þakkir fyrir að taka símann og eyða öllum vafa í sambandi við olíumagn á afturdrifi
