húddið mitt ákvað að læsast niðri af einhverjum ástæðum, tók í opnarann sem var skuggalega stífur þangað til að stykkið sem hélt brotnaði, mixaði einhverja skrúfu til að halda þessu í en ennþá skuggalega stíft og bara haggast ekki. þá tók ég allt þetta dót í sundur, fann vírinn og togaði og togaði. en ekkert virkar. ógeðsleg leiðindi þar sem ég ætlaði mér að detta í soggreinaskipti.
það væri geðveikt ef einhver gæti deilt smá fróðleik hérna eða hjálpað mér með þetta.


