Langaði að deila með þessum upplýsingum sem ég fékk frá eigandanum,,,,
ég hafði auðvitað samband við hann eins og klikkuðum E28 eiganda er líkt
eigandinn wrote:
Sæll Skúli Rúnar
Gaman að heyra að það eru fleiri dellumenn en ég um gamla BMW bíla. Ég skal senda þér mynd af bílnum síðar og þó ég segi sjálfur frá þá held ég að hér sé um einstakt eintak að ræða. Bílinn er ekinn 180.000 km og er sem nýr að sjá, hvergi nokkurn staðar ryð í bílnum, lakk sæti og áklæði óskemmd og teppi í gólfum sem ný. Bíllinn var fluttur inn frá Þýskalandi af Sveini Ríkharðssyni á Dalvík sem er einstakur smekkmaður á bíla. Ég kaupi svo bílinn af honum þá ekinn 40.000 km. og hefur hann verið í okkar eigu síðan. Hann fer í hús á undan kúnum á haustinn og ekki tekinn út fyrr en jörð fer að grænka.
Heyri í þér síðar,
Einnig væri gaman ef þú ættir til myndirnar ennþá Jón Mar....
Svo er ýmislegt búið að breytast síðan ég skrifaði þetta á 1. bls:
Posted: Sun 08. Oct 2006 23:25
srr wrote:
Ég er nú á leiðinni að verða E28 eigandi

Núna eru þeir:
E28 535i '87
E28 533iA '82
E28 520iA '87
E28 518 '82
