Í tilefni snjóleysis og að þessi þráður var kominn afturá neðanverða blaðsíðu 4, þá gerum við smá myndaupdate.
Ekkert merkilegt, en ég náði með herkjum að koma kvikindinu í gang og fór með hann smá út í blíðuna, en þá byrjaði náttúrlega að snjóa um leið og ég hugsaði um að bakka út. Mjög hressandi á rennisléttum sumardekkjum




Renndi svo bílnum inná verkstæði í smá checkup vegna alvarlegra gangtruflana.

Í ljós kom að bæði kveikjulok og hamar er gjörsamlega handónýtt. Kom í ljós að bæði voru framleidd í september 1988, sama mánuði og bíllinn rann af færibandinu. Sennilega um orginal hluti að ræða og þessvegna ekkert skrítið að þetta sé ónýtt.
Einnig þarf að græja nýtt púst, aftasti kúturinn er alveg búinn á því eftir 2 ár af reddingum. Langar mest að smíða komplett nýtt kerfi undir hann.
Kannski eitthvað fleira smávægilegt sem hrjáir hann, en það verður bara að koma í ljós hvort ég næ að gera hann klárann á götuna fyrir sumarið.