e46 318 m43b19 vandamál

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

e46 318 m43b19 vandamál

Postby lacoste » Wed 09. Sep 2009 17:13

Góðan daginn.

Þá er maður loks kominn á bmw aftur, hendi inn myndum af honum seinna.
En það sem er að hrjá bílinn er að hann gengur rosalega lélegan hægagang, rokkar upp og niður um 200 snúninga og titrar allur í rugl og það er ljótt hljóð í honum, en annars virkar hann fínt þegar maður fer að keyra venjulega. Grunar að þetta sé hægagangsskynjari eða eitthvað alíka? :oops: Vitiði nokkuð hvar hann er í m43, realoem mynd kannski?

Svo var ég að spá í öðru, ég fór út að prófa hann áðan í rigningunni og prófaði að henda honum á hlið, en það er eins og hann sé bara skítmáttlaus þegar hann er í semi fullri beygju en hann virkar samt flott þegar hann fer beint áfram. Veit að þetta er 318 og heil 118hp en er þetta virkilega svona kraftlaust? :lol:

Og eitt að lokum, hvernig hafa þessar vélar verið að reynast mönnum? Mikið bilerí eða vesen á þessu?
ovlov
BMW e39 523i (Seldur)
Audi S4 Turbo (Seldur)
BMW e34 525ia (Seldur)
e46 318 ci (Seldur)
e36 320 coupe (Seldur)
User avatar
lacoste
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 390
Joined: Fri 26. Sep 2008 17:42

Re: e46 318 m43b19 vandamál

Postby ValliFudd » Wed 09. Sep 2009 17:17

Sama og venjulega bara er það ekki..
Léleg kerti?
Falskt loft?
Súrefnisskynjari?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 61 guests