Sko, mælaborðið hjá mér er víst með mælir uppá hvað bíllinn er að eyða miklu í akstri, en það virðist ekki alveg vera að virka tipp-topp.
Þegar ég ræsi bílinn fara öll ljósin á mælaborðinu og vísarnir að hreyfast og svona, en þessi mælir fer bara á bakvið (langt yfir 30 lítrar á hundraði, þið með svona ættuð að vita hvað ég er að tala um) og annaðhvort er hann þar þar sem hann sést ekkert, eða bara á 0....getur þetta verið sambandsleysi ?
Virðist nefnilega bara peran á bakvið km/h mælirinn vera í gangi, peran bakvið snúningsmælirinn er annaðhvort ekki að virka eða sprungin, svo ég var bara að pæla í hvort þetta væri sambandsleysi.
Allar upplýsingar vel þegnar


