Þangað til fyrir helgi hafði ég aldrei átt bíl sem var ekki með málmþaki. Þegar kom að því að þrífa nýja bílinn, þá kom ég að tómum kofanum hvað þekkingu á blæjuþrifum og viðhaldi varðar.
Þetta eru nú líklega ekki nein stjörnuvísindi en mig langar samt að forvitnast hvað menn eru að gera til að halda blæjum vatnsheldum og fallegum.
Fann líka þennan fína link á bimmerforums en þar er bent á efni sem ég hef ekki hugmynd hvort séu fáanleg hér á landi.
http://www.carcareonline.com/viewarticle.aspx?art=3Hvað segir krafturinn? Eitthvað betra en annað í þessum efnum?
Öll ráð vel þegin.