Það er nefninlega ekki erfitt að fá hestöfl þegar maður lítur á þetta sem venjulegar vélar.
Og ef maður er ekki bundinn original tölvunni þá verður leikurinn enn auðveldari, þ.e allar normal tjúningar ganga
#1 er t.d original pústgreinarnar á S62. Þær eru þær sömu og á 735i V8.
Segir mér enginn að þarna hefði BMW alveg getað gert stóra hluti, enn peninga teljararnir sáu fyrir því.
Og svo eru menn á M5board að láta röra sig alveg feitast í heimi með flækjum uppá $2500 .,
Er það heilbrigt verð á flækjum?
Það er ekki meira efni í þeim heldur enn einhverjum USA flækjum sem kosta 10x minna og eru alveg verulega vel hannaðar.
#2. Styttri trumpets á S62 til að auka high end powerið með pulse tuning sem virkar þar.
Ég er ekki að segja neitt slæmt um vanos. Ég er bara að segja að þegar maður er að pæla í notkun á þessum mótorum í
léttari chassis þá verður tapið á vanosi ekki jafn augljóst. Hvað þá ef maður ætlar að fara tjúna vélina svo, fínt að þurfa ekki að fljúga inn sérfræðing eða kaupa standalone uppá mörg hundruð þúsund bara til að nýta vanosið og DBW.
Mitt vandamál með þessar vélar er hvernig er búið að búa að eigendum M5 bíla með öfga verðum á vörum.
t.d $2k fyrir tvö rör í CAI frá Dinan, svoleiðis er bara algjör steypa. Virðist vera að M5 eigendur séu ekki svona grúskarar eins og þeir sem eiga ódýrarri bíla og menn eru að kapitalísa á því með bendover verðum á einu og öllu. Og það mun ekki verða almennilega aðgengileg flóra í þessum mótorum fyrr enn bílarnir verða enn ódýrarri og eigendurin enn fátækari,
Það er einnig ekki hægt að taka Mr.X of alvarlega, það sem er létt fyrir honum er bara ekki létt fyrir neinn annan.
Þegar hann segir að hann geti sett S62 tölvu á tvær M42 vélar , eina framí og eina afturí þá er það ekkert mál
FYRIR HANN. Það er ekkert vandamál að tjúna vanosið ef tölvan sem maður hefur leyfir það. Mér finnst 10% tog tap fyrir neðan 4k ekki mörg hundruð þúsunda virði
Þessar vélar verða alveg kóngarnir í vélarswöppum framtíðarinnar. Þegar þetta fer að detta í verði og menn fara fíflast með þetta í E30/E36 og E46 eins og menn hafa gert með M50/S50/S52 í E30 og E36 þá fara þessar vélar að sýna sitt rétta andlit.
Ég meina þegar M50 kom út ´91 hverjum hefði dottið í hug að í dag væri hægt að kaupa eða setja samann 3.3lítra M20 með pörtum úr nýrri vélum og fá solid 280hö úr M20 með rétta ásnum.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
