Mazi! wrote:
svo mig langar að vita
hvað gerir Mobil 1 svona slæma eða góða ? (hef aldrey þorað að kaupa svona olíu)

Það sem Mobil1 hefur umfram flestar aðrar olíur er að hún er "Full synthetic" = Gerviefnaolía s.s hún er búin til, ekki eins og þessar algengusu mótorolíur sem koma úr jörðinni og eru hreinsaðar/eimaðar osfr.
Gerviefnaolíur eru þeim eiginleikum gæddar að seigja olíunnar breytist mun minna við hitastigbreytingar frá t.d 20°c og uppí keyrsluhita heldur en hefðbundnar jarðefnaolíur. Einnig eru þessar olíur efnabættar þannig að sót og oxun í olíunni hafa minni áhrif á smurhæfni hennar samanborið við jarðefnaolíur. T.d er hiklaust mælt með full synthetic olíum á turbo bílvélar sem eru með olíukældri forþjöppu því yfir forþjöppuna getur olían hitnað umtalsvert í hita leiksins(meir en annarsstaðar í vélinnni) og þegar olía hitnar yfir viss mörk fara að falla út efni í henni og hún missir smureiginleika sína, synthetísk olía þolir meiri hita en jarðefnaolíur án þess að missa þessa eiginleika sína.
Hér mætti kannski benda á að á flestum smurstöðvum sem selja Mobil olíur er hægt að fá Mobil 3000 5w/40 sem er líka full synthetic en er töluvert ódýrari en mobil1.
Svo er líka til Mobil1 5/40 ESP full synthetic en það er svokölluð langtímaolía, þeir bílar sem notast við þessa olíu verða að vera með búnað(skilvindu) sem skilur sót úr olíunni til þess að eiginleikar hennar nýtist til fulls en þá er líka smurt á 15000km fresti.