bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 21. Jun 2025 22:43

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 40 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
PostPosted: Sat 29. Aug 2009 22:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Ég og konan erum sannfærð að við sáum tvö geimför rétt norð-vestur frá
Reykjavík núna rétt áðan.

Tvö sérkennileg ljós komu í áttina til okkar, ekkert hljóð, og ferðuðust
á sérkennilegan máta, síðan hurfu þau upp í himinhvolfið.
Klukkan var um 22:15 þegar þetta gerðist.
Ég og konan erum svolítið orðlaus yfir þessu, ath. ekkert áfengi var með í för..

Við hringdum í 112 og gaurinn sem svaraði klóraði sér í hausnum, ætlaði
að gefa okkur samband við lögreglu en ég afþakkaði..

Er hægt að tjékka á flugturninum? veit einhver leið til að nálgast tracka eða eitthvað?

_________________
Carrera4 964 '91

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 29. Aug 2009 22:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Posts: 5953
Location: Akranes
Örugglega svolítð sláandi að upplifa eitthvað sem maður trúir ekki á en geta ekki útskýrt hvað maður upplifði. Spurning hvort aðrir hafi séð þetta.

_________________
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 29. Aug 2009 22:54 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 04. Jun 2006 12:20
Posts: 232
Location: Reykjavík
Ég sá þetta líka.
Þetta voru allavega engin blys sem ég hef séð áður.
Mjög furðulegt.
Staðbundin mjög björt ljós, sem dofnuðu á svo til sama tíma. Síðan það furðulegasta, annað "farið" færðist í átt til sjávar og svo hitt á eftir nokkru síðar.

:?:

_________________
Landcruiser VX 100 -Daily-
M-Benz 300CE -Sundays-

"Would you rather be an arse-faced weasel or a weasel-faced arse ? "

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 29. Aug 2009 22:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Jet wrote:
Ég sá þetta líka.
Þetta voru allavega engin blys sem ég hef séð áður.
Mjög furðulegt.
Staðbundin mjög björt ljós, sem dofnuðu á svo til sama tíma. Síðan það furðulegasta, annað "farið" færðist í átt til sjávar og svo hitt á eftir nokkru síðar.

:?:

Geggjað, við erum þá ekki klikkuð !!!

Hringdu í 112 eða eitthvað :lol:

_________________
Carrera4 964 '91

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 29. Aug 2009 23:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 29. Aug 2009 23:16 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 06. Jun 2009 19:11
Posts: 148
Location: Kópavogur
:alien:

_________________
BMW 325IS coupe 93'
Image
BMW 740IA 95' (seldur)

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 00:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
Hafið samband við Magnús Skarphéðinsson. Hann er formaður Félags áhugamanna um fljúgandi furðuhluti og safnar frásögnum af svona löguðu. Svo getur hann örugglega frætt ykkur eitthvað um þetta.

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 00:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
siggir wrote:
Hafið samband við Magnús Skarphéðinsson. Hann er formaður Félags áhugamanna um fljúgandi furðuhluti og safnar frásögnum af svona löguðu. Svo getur hann örugglega frætt ykkur eitthvað um þetta.

Slæ á þráðinn á morgun..

Það virðist ekkert vera í fréttunum um þetta..
Reyndar fór stóra landhelgisgæsluþyrlan í loftið rétt á eftir og stefndi í svipaða átt, hvort það
hafi verið tengt þessu veit ég ekki.

En það væri gaman að fá staðfestingu, sé reyndar að Jet hérna ofar á Cessnu
flugvél þannig hann veit örugglega hvað ég á við þegar ég segi að þessi
ljós ferðuðust mjög furðulega..

_________________
Carrera4 964 '91

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 00:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
En ef þið pælið í því, hverjar líkurnar séu að það séu til einhver svona geimför
Hverjar eru þá líkurnar á að þau séu með ljós? Og afhverju?
Ef þetta eru svona háþróuð, afhverju þurfa þau að vera með ljós?

:alien:

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 01:14 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Posts: 1045
Location: Spánn
Voru þetta ekki bara gervihnettir, þeir geta verið mjög bjartir í smá stund þegar þeir lenda í sterkum sólargeisla frá þér séð.
Ef þú ert með nákvæma staðsetningu þá er alveg hægt að tjekka á því.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 01:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Þótt svona hlutir séu talsvert óraunhæfir þá hef ég alltaf jafn gaman af svona pælingum.

Datt einmitt inn í X-Files seríurnar um daginn aftur. Bara í lagi :thup:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 01:34 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Posts: 1045
Location: Spánn
gunnar wrote:
Þótt svona hlutir séu talsvert óraunhæfir þá hef ég alltaf jafn gaman af svona pælingum.

Datt einmitt inn í X-Files seríurnar um daginn aftur. Bara í lagi :thup:

Ég mæli með Þversögn Fermis: http://www.stjornuskodun.is/forsida/37- ... egn-fermis
og þessari grein líka: http://www.stjornuskodun.is/forsida/37- ... -geimverur

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 02:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Áhugavert. :o

Annars fór ég út fyrir tveim kvöldum með stjörnusjónauka og nokkrum vinum mínum, rétt fyrir utan bæjarmörkin þar sem var engin lýsing. Við í borginni erum að missa af rosalega miklu útaf allri lýsingunni sem við notum. Bókstaflega 1000x fleiri og bjartari stjörnur var að sjá, endalaus gervitungl og meira að segja vetrarbrautin sjálf. Var að skoða Júpíter þegar það kom frekar bjart ljós í sjónaukann. Í fyrstu hélt ég að þetta væri flugvél, því þær voru margar að lenda í kringum miðnætti, en þetta var of bjart til þess og í fyrstu hreyfðist þetta ekkert. Svo fer þetta nú aðeins að hreyfa sig og stefnir 'ská-upp' og virðist fara sífelt hraðar og hraðar. Það var eins og hluturinn var að fara burt frá mér, því þegar hraðinn jókst, deyfðist ljósið. Á endanum hvarf þetta alveg.

Líklegast bara gervihnöttur, en mega töff. Ég er a.m.k. alveg 100% á því að þetta hafi ekki verið flugvél. :lol: Annars mæli ég með því að þið kíkið út að kvöldi til þegar það er heiðskýrt, skreppið út fyrir bæjarmörkin og sjáið það sem við erum að missa af. Algjör snilld.

_________________
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 02:08 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Posts: 1045
Location: Spánn
SteiniDJ wrote:

Ég og nokkrir úr stjörnuskoðunarfélaginu förum reglulega út í Krýsuvík, mjög fínt að vera þar, það er malarplan þar hjá tveimur stórum turnum sem er fínt að vera og skoða himininn.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 30. Aug 2009 02:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Hemmi wrote:
SteiniDJ wrote:
Áhugavert. :o

Annars fór ég út fyrir tveim kvöldum með stjörnusjónauka og nokkrum vinum mínum, rétt fyrir utan bæjarmörkin þar sem var engin lýsing. Við í borginni erum að missa af rosalega miklu útaf allri lýsingunni sem við notum. Bókstaflega 1000x fleiri og bjartari stjörnur var að sjá, endalaus gervitungl og meira að segja vetrarbrautin sjálf. Var að skoða Júpíter þegar það kom frekar bjart ljós í sjónaukann. Í fyrstu hélt ég að þetta væri flugvél, því þær voru margar að lenda í kringum miðnætti, en þetta var of bjart til þess og í fyrstu hreyfðist þetta ekkert. Svo fer þetta nú aðeins að hreyfa sig og stefnir 'ská-upp' og virðist fara sífelt hraðar og hraðar. Það var eins og hluturinn var að fara burt frá mér, því þegar hraðinn jókst, deyfðist ljósið. Á endanum hvarf þetta alveg.

Líklegast bara gervihnöttur, en mega töff. Ég er a.m.k. alveg 100% á því að þetta hafi ekki verið flugvél. :lol: Annars mæli ég með því að þið kíkið út að kvöldi til þegar það er heiðskýrt, skreppið út fyrir bæjarmörkin og sjáið það sem við erum að missa af. Algjör snilld.

Ég og nokkrir úr stjörnuskoðunarfélaginu förum reglulega út í Krýsuvík, mjög fínt að vera þar, það er malarplan þar hjá tveimur stórum turnum sem er fínt að vera og skoða himininn.

Hvar er þetta plan nákvæmlega? Hef einmitt verið að velta því fyrir mér hvert gott væri að fara.

_________________
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 40 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group