Sælir, jæja núna er búið að brasa aðeins í bílnum með hjálp frá JARLINUM en engin niðurstaða er kominn fyrir þessu KOKI í honum?
Bíllin gengur fínan hægagang og gengur fínt ef að það er gefið rólega í, þá vinnur hann sig upp að ákveðnum snúning (snúningshraðamælir ótengdur) en svo gjörsamlega KÆFIR hann sig og sprengir upp í loftsíuboxið en helst samt í gangi, en ef það er gefið snöggt inn þá byrjar hann strax á koki, nema að stundum þá virkar hann í botngjöf (þegar hann er orðin heitur) en stundum EKKI.
Þetta byraði allt með því að bíllinn fór að koka stuttu eftir að það var skipt um drif, bíllinn inn í skúr og ég sá að það var farin heddpakkning, þannig að það var skipt um hana og farið með heddið í kistufell og þar var það þrýstiprófað, planað, rennt úr ventlasætum og ventlar renndir og allar pakkningar nýjar í heddi, ný ventlalokspakkning, nýtt kveikjulok og hamar,ný vatnsdæla, tímareim, strekkjarahjól,vatnslás.
Svo var næsta skref að raða öllu saman, gekk vel, tók smá stund en það hafðist að lokum, en allt kom fyrir ekki, bíllinn kokaði ennþá á nákvæmlega sama hátt og hann gerði áður.
Það sem er búið að gera:
Skipt um bensíndælu(og rely fyrir hana)
annar loftflæðiskynjari prófaður
Önnur kveikja sett í
Prófaður annar TPS
ný kerti
Önnur mótortalva
vaacum pungur frá bensínsíu
mældur bensínþrýstingur, kom vel út.
prófaðir aðrir kertaþráðar
ATH neista, hann neistar á öllum
skipt um hægagangspung
Allar slöngur ath. við falskt loft, í lagi
Þannig að þetta er ekkert tengt því hvort að bíllin sé að fá of mikið/of lítið bensín frekar eitthvað kveikjutengt???
En ég er búinn að tappa öllu lofti af honum en samt á hann það til að það sjóði á honum hjá mér 2x, og DREP ég þá strax á honum(gæti verið út af því að það lekur örlítið vatn hjá pungnum sem að vatnlásinn er í).
HJÁLPPPPPPP, ALLAR UPPÁSTUNGUR VEL ÞEGNAR.
þarf að selja bílinn, en það eru allir svo skíthræddir við þessa bilun að enginn þorir að kaupa hann
ps. ætla að kaupa nýja bensínsíu á morgun og henda í
MEÐ BESTU KV. ANDRI 6631346