Kúplingin fór í í kvöld ásamt öðrum gírkassa, svinghjóli sem ég lét yfirfara og annari kúplingslegu, því síðast þegar ég skipti um gírkassa þá fór viltlaus lega í
Fékk að fara inn hjá frænda mínum, geggjað að gera þetta leiðinlega djobb á lyftu maður

Annað svinghjól sem ég lét rennismið renna yfir fyrir mig og kúplingsdiskurinn.

Sést hérna að þetta hefur hitnað aðeins, allavega var kúplingsdiskurinn gamli ekki upp á sitt besta.

Sævar hjálpaði mér.
Sævar gefur mér merki um að þetta sé BARA í lagi


Vorum um 4 tíma að þessu með smá veseni sem við hefðum geta sleppt.
Kúplinginn er ekki eins brútal eins og ég hélt, annars er ég ekkert búinn að keyra með hana. En hún er gróf samt, gírkassinn er allt annar, bara fínt að það hljómar ekki lengur eins og maður sé alltaf að bakka.