ég hef tekið 2-3 bíla í gegn með svona leðri,
byrja á að blanda saman vatni og uppþvottalegi og skóbursta eða grófan bursta og nudda og nudda, og tek svo með blautri tusku líka og svo þurrum klút t.d míkrófiber, læt svo standa yfir nótt,
fer svo yfir sætið með sterkum bostik límhreinsir, hann tekur ALLT sem hefur fests við leðrið, þ.á.m litin, þannig að maður verður að passa sig, tek stundum sprungur með bostik til að eyða kantinum þar sem leðrið sprakk,
ber svo leather masters lit í leðrið, (stundum þarf að blanda svona ljóst, færð caramell og hvítt)
þurka svo litin og fer umferðir eftir þörf,
svo glærar maður yfir og voila.. sætið MIKLU betra
