SteiniDJ wrote:
Aron Fridrik wrote:
SteiniDJ wrote:
Hef mikið verið að opna svona síma fyrir vini og vandamenn. Þetta getur verið mjög risky. Ef síminn er t.d. ekki CE merktur, þá geta þeir í tollinum hirt hann (síminn minn er CE merktur, en ekki síminn hjá bróðir mínum eða vini mínum), svo getur verið að síminn komi 'bricked' (þ.e., þá er búið að eiga við símann og hann eyðilagst). Ef þú ert ekki að kaupa símann retail, þá myndi ég frekar fara í notaðan síma. Ef þú ætlar í retail, þá er hægt að opna næstum alla 2G síma, en ég er ekki viss með 3G símana.
Þú getur lesið um þetta á
hackint0sh.org , eða bara googlað "iPhone xG jailbreak forum". X er þá annaðhvort 2 eða 3. Svo er
iClarified mjög góð.
er ekki hægt að unbrick-a iPhone ?
Ég hef aldrei lent í brickuðum síma, en jú, það er hægt að laga suma kubba, aðra ekki. Það er ótrúlega mikið búið að breytast á því sviði á þeim tíma sem síminn er búinn að vera til. Þegar ég byrjaði að fikta í þessu, þá þurfti maður að breyta rótskrám manually, mega hættulegt dót.

En það hefur eitthvað borið á því að rafhlöðurnar hjá Apple séu að springa. Heyrðu sögur um iPod Touch sem sprakk og nokkrir iPhones. Sagan segir að Apple hafi reynt að drepa þá orðróma með mútum. Ótengt því, þá er ég a.m.k. hættur að versla við Apple.
Þessar sögur um þessi bombu batterý finnst mér frekar óáreiðanlegar. Þetta hefur komið frá þannig miðlum erlendis sem lítið mark er hægt að taka á.
En það þarf nú ekki mikið meira en að missa síman í vatn, eða vera með hann í raka og setja símann síðan í hleðslu. Við það bólgnar batterýið upp og springur að lokum - gerist á ÖLLUM símum. Í flestum svona tilfellum er þetta kúnninn sem er að klúðra einhverju. Apple hefur selt 30.000.000 síma og þær tölur voru kynntar áður en nýjasti síminn hjá þeim kom á markað. Finnst frekar hæpið að einungis einn sími sé að hegða sér svona af sökum framleiðslugalla.