Vargur wrote:
Vissulega bannað en það held ég að sé aðallega vegna ónæðis sem fólk getur orðið fyrir þegar þessir bílar eru gangsettir td snemma morguns.
Ég skil reyndar ekki þetta hatur á vörubílum, af hverju á fólksbíll að vera eitthvað rétthærri en vörubíll og af hverju er ökumaðurinn drulluhali ?
Menn meiga ekki gleyma því hvað þessir bílar gera fyrir okkur. það væri td gaman að sjá mannskapinn keyra efnið upp úr og í sökkla á nýbyggingum með leigukerru frá Shell.
Svarið þitt var ekki komið inn hérna þegar ég skrifaði svarið mitt.
En eins og ég sagði fyrr, þá var þetta skrifað áðan þegar ég var illa fyrir kallaður og ekki sá besti í skapinu og voru skrif mín undir þeim áhrifum.
Það er alveg rétt að þetta eru mikil þarfa tæki og ég styð vörubílstjóra heilshugar en þetta tiltekna tilvik er einstaklega hvimleitt enda varla hægt að opna hér glugga þegar gripurinn er gangsettur á morgnanna ásamt því að það er ekki mikið um stæði hér akkúrat í götunni og hef ég alloft lent í því að þurfa legga talsvert neðar í götunni sökum þess hve lítið er um stæði.
Og ég veit af því að fleira fólk hér í götunni er langt frá því að vera sátt með þetta. Sérstaklega fólkið í íbúðinni sem hann leggur yfirleitt sem næst því það getur einfaldlega ekki haft opna glugga sökum díselstyppu sem leggst inn í íbúðina á morgnanna.
_________________
Geysir Golf - Kíktu í Golf'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard