Svezel wrote:
iar wrote:
Svezel wrote:
KLyX wrote:
Svo ef þetta er týpan sem kann ekki fingrasetninguna á lyklaborði og skrifar allt með vísifingrum þá er hægt að svissa tökkum á lyklaborðinu. Setur þær týpur alveg í kerfi.
Þetta virkar á mjög mjög marga, sérstaklega ef maður víxlar tökkum eins og "F" og "G" eða "J" og "K". Gerði þetta við vinnufélaga minn og hann var í 10mín að reyna að logga sig inn

Mig hefur langað að gera þetta við Ottó, hann horfir _ekki_ á skjáinn þegar hann skrifar.

Hver var þetta annars?

Ég gerði þetta við Dosta, hann var nálægt því að fá taugaáfall þegar ég loks sagði honum frá þessu
Svo er eitt gott sem er hægt að gera á flestum vinnustöðum og var gert á skipi sem frændi minn var á. Þá tók einn snillingur krukku af mysing og fór inn á klósett. Hann þreif klósettið vandlega og makaði það síðan í mysingnum eins og einhver hefði fengið alveg stóra skotið yfir postunlínið. Loks fór hann inn í matsal og beið eftir því sem gerðist næst
Stuttu seinni heyrast alveg þvíkík öskur frá klósettinu og áhöfnin stekkur inn á klósett að athuga málið. Þar eru allir alveg agndofa yfir þessu líka shit sessioni og spyrja hvaða ómenni geri svona lagað eiginlega. Þá stekkur mysingssnillingurinn á fætur, rennir puttanum í mysinginn, stingur honum upp í sig og segir: "Ekki ég, þetta er ekki minn".
Það dettur náttúrlega af öllum andlitið þangað til hann fer að skellihlæja og segir öllum frá hrekknum.

Gott að smyrja hnetusmjöri undir einn skó. Spyrja svo alla hvaða ógeðslega lykt þetta sé og kíkja svo undir skóinn, setja upp viðbjóðssvip en stinga svo puttanum í gumsið og sleikja.
Annars er hér einn íslenskur. 2 rúllur af álpappír og 2 tíma vinna:

Spurning hversu langt menn vilja ganga, hérna var t.d. öllu pakkað inn, hver einasti penni sér osfrv. Bjartasti básinn á skrifstofunni.
Svo eru náttúrulega fleiri básahrekkir, eins og að filma með vitawrap fyrir básinn og fylla upp í hann með pökkunarefni, veggfóðra með post-it miðum eða setja full einnota vatnsglös út um allt.