zneb wrote:
Þetta er nú meiri forræðishyggjan ég trúi ekki að fólk vilji lifa í svona landi þar sem endalaust eru sett boð og bönn.
Hvernig væri að gera e-ð til að virkilega bæta umferðarmenningu og betri ökumenn, lengja námið, gera það betra, koma upp akstursbrautum sem eru NOTAÐAR við kennslu og annað. Allavega er t.d. nám í Finnlandi mjög stíft að mér skilst með miklum æfingum við allar aðstæður, a.m.k segja top gear það
Ég keyrði reyndar eins og engill fyrsta árið en eftir það þá fór pedallinn að síga allverulega á tímabili, en jújú maður tekur enn eftir því að athyglin er ekki alveg jafn góð þegar það er fullt að fólki til að chatta við í bílnum en ég persónulega keyri hægar þegar ég er með farþega, en maður er nú líka orðinn vel rúmlega 23ja í dag...
En jú allt í lagi að hækka aldurinn svosem uppí 18, takmarka afl bíls jafnvel líka...
Ég vil ekki að ríkið komi nálægt bílunum. Mér finnst í lagi að aldurinn sé hækkaður í 18 ára, en að setja auka reglur í kringum það er bara absurd og bjánalegt.
Ég byrjaði að keyra um leið og ég varð 17 ára. Ég er ekki frá því að flestir 17 ára bílstjórar séu óttalegir bjánar, en ég hef komist af síðan án þess að lenda í nokkurskonar tjóni og algjörlega laus við (slæm) afskipti lögreglu. Persónulega held ég að það skipti minna máli hversu djúpt pedalinn sýgur, það er heilinn og skynsemi sem skiptir meira máli.
En eins gott og það væri að fá betri ökukennslu, þá er það bara fokdýrt. Eins og staðan er í dag, þá held ég að krakkar (eða foreldrar þeirra) hafa lítið efni á að spreða í það. Einn strákur sem ég talaði við í dag er að borga 200k+ fyrir allan pakkann, hversu mikið væri það ef batteríið í kringum þetta myndi stækka? Úff.
Þetta frumvarp er bara silly.