by Jói » Thu 22. Jan 2004 15:18
Svakalega flottur bíll. Felgurnar fara honum vel og shadowline pakkinn við ljósa leðrið er alveg glæsileg blanda. Þessi bíll minnir mig örlítið á gamla bílinn hans Svezel. Það voru eins felgur og eins leður, ef ég man rétt.
Mér finnst afturljósin ekki flott svona rauð/svört.
Mér finnst verðið á þessum bíl vera alveg í hæsta lagi, 1880 þ er of hátt verð fyrir þennan bíl miðað við aldur og akstur. Hann er reyndar vel útbúinn og lítur sérlega vel út. Bílasölurnar virðast keppast við að halda verðinu á þessum bílum eins hátt og mögulegt er. Þetta verð er samt í sjálfu sér ekkert of hátt miðað við það verð sem er sett á suma af þessum bílum hérlendis. Ég held samt að þetta verð endurspegli ekki eftirspurnina eftir þessum bílum.