Er ég sá eini sem finnst að samkomurnar séu orðnar pínu þreyttar?
Þeas. að formið sé of einhæft - hittast einhversstaðar á bílastæði, sparka í dekk og
spjalla í klukkutíma og svo búið.
Spurning hvort mætti krydda þetta aðeins - hittast og fara í rúnta.
Sem dæmi fara Þingvallarúnt í góðu veðri. Eða rúnta eitthvert og skoða
áhugaverða hluti - gæti verið eitthvað project í smíðum, etc.
Spurning um að fá smá umræðu um þetta.
PS. Þetta er ekki diss á stjórn Kraftsins eða einn né neinn.



