Afar fallegur bíll og virðist vel unnið. Gaman að sjá svona. Held þó að eigandinn sé örugglega litblindur, skelfilegur litur á annars mjög fallegri innréttingu. Einnig ófyrirgefanlegt að klikka á því að loka originalpústraufinni á aftursvuntunni því bíllinn var jú alveg tekinn í nefið sbr myndirnar og sérstaklega afturstykkið. Finnst einnig vanta svarta hliðarlista á bílinn og á stuðarana en það auðvitað smekksatriði. Hefði komið vel út með þessum svarta ramma umhverfis hliðarglerin. Já, felgurnar hefði ég haft öðruvísi. Þessar Dynamat mottur í gólfinu eru þær ekki ávísun á ryðvandamál? Örugglega hugsað sem hljóðeinangrun. Eru bílarnir með svona original? Hann setur svolítið hátt upphafsboð á e-bay, eða 500.000 $. Greinilegt að hann ætlar sér ekkert að selja!!!
_________________

BMW X1, 18d, 2014 (E84)
BMW X5, 4,8i, 2007 (E70)
BMW 635CSi,1986 (E24)
BMW 316,1987 (E30)
BMW 530Xi Touring, 2006 (E61), seldur
BMW X5, 2007, (E70), seldur
BMW X5 4,4i, 2004 Seldur