Zed III wrote:
sorted, en þetta snýr auðvitað að sitja ekki uppi með veð á bíl sem maður kaupir.
Þetta er nú ekki flókið, og getur ekki klikkað ef báðir aðilarnir eru til staðar til að skrifa undir.
Það eina sem þarf að gera er að fá samþykki frá lánastofnuninni fyrir nýjum ábyrgðaraðila, svo prentar lánastofnunin pappírana út, kaupandi og seljandi skrifa undir auk votta, blöðunum skilað inn, og svo þarf seljandi ekki að hafa meiri áhyggjur.
Ef um bílasamning er um að ræða er málið búið, en ef þetta er bílalán, þá þarf líka að fylla út eigendaskiptablað, og því svo skilað inn til umferðastofu eða næsta bifreiðaskoðunarstað, svo að það er ekkert nema sóun á pening að láta þetta fara í gegnum bílasölu nema þá auðvitað ef bíllinn hefur verið seldur í gegnum þá.
En ef verið er að staðgreiða bíl sem er með bílaláni á, að þá á kaupandinn bara að borga lánafyrirtækinu. Sá peningur á aldrei að fara í gegnum seljandann....