Eins og eflaust margir hér er ég mjög mikill bjór áhugamaður, og langar þess vegna að varpa fram þremur punktum varðandi
bjórneyslu kæru krafts limir.
1. Nú nánast strax eftir síðustu hækkun á áfengis tollinum, talar Steingrímur J. um að hækka megi gjaldið um 30-40% í viðbót
og ætlar líka að gera það

En ég spyr: eru ekki ágætis líkur á því að neyslan muni dragast saman þegar verðið hækkar svo mikið og því mun hækkunin ekki skila árangri
2. Afhverju í fjáranum er innlendur bjór svona dýr? T.d Polar Beer sem er hund vondur
Innlendur lager bjór 4,7% að styrkleika, kostar 289kr á meðan t.d Bavaria sem er
Innfluttur Hollenskur 5% bjór kostar það sama eða 289kr, þrátt fyrir að vera fluttur inn fyrir rándýran gjaldeyri??? WTF Er verið að reyna stýra neyslu okkar svona að 1/2 af bjór í dós skal bara kosta 300kr sama hvað???
3.Hversu mikið mál er að brugga bjór til einkaneyslu
