bimmer wrote:
slapi wrote:
Ef að þetta er eins og þú lýsir sem eitthvað ryk og þetta er undir plenum coverinu þá er enginn vafi að það hefur farið eitthvað magn inn á mótor en nátturulega óvíst hversu mikið.
Ég myndi halda mig við þetta plan sem þú ert með því svarfið getur farið í olíuna , núna veit ég ekki hvernig vélarönduninni er háttað hjá þér en hún er væntanlega fyrir framan allt gamanið.
Ég hef lent í að hreinsa allskyns drullu úr elementum/ic/vatnskössum og þetta er hreinast sagt algjör leiðindavinna.
Tekur mikinn tíma og maður má ekki hætta að hreinsa fyrr en maður er viss að allur skítur sé farinn.
En ein pælin fór einhver olía af fram með öxlinum eða er þetta bara eins og liggur fyrir ?
Það er ekki ryk undir coverinu sjálfu en ég fann svarf á botninum á plenum hólfinu.
Það fór hellingur af olíu í gegnum superchargerinn og upp í átt að IC, fékk
þetta allt gusandi á móti mér þegar ég losaði hosuna frá SC. Vonandi er sem
mest af þessu svarfi í olíunni.
Hvaða aðferð notarðu við að hreinsa út úr IC???

Þar sem að það er væntanlega eitthvað af olíu í IC er líklegast auðveldara að ná öllu þessu þar sem þetta bindst í olíuna.
Það er til einhver sér IC hreinsir en það er bara ætlað í DíselógeðisEGRolíuviðbjóðs stíflur.
Olíuhreinsir og glás af heitu vatni , analysera vatnið sem kemur út einsog að láta renna í gegnum bréf , eitthvað sterkt til að sjá hvort það sé hætt að koma drulla úr honum.
Síðan þegar þú ert búinn að fullvissa þig um það að IC sé hreinn að láta renna í gegnum hann einu sinni enn bara af rauða krananum heitt vatn svo hann þorni örugglega.