bjornvil wrote:
Sælir félagar
Mig vantar tvo hjólkoppa á Ford Focus hjá mér. Ég get fengið þá á um 5000 kall hjá Brimborg.
Ég er að spá hvort það sé eitthvað vit í að renna við hjá Valda og athuga hvort hann eigi svona koppa til? Hvað er kallinn að selja stykkið á? Eru einhverja líkur á að hann eigi akkúrat eins koppa og ég er að leita að?
Ég hef aldrei komið við hjá honum, þannig að ég veit ekkert við hverju má búast.

Það er alls ekki ólíklegt að hann eigi þetta til en taktu einhvern vin með þér sem bíður í bílnum ef þú ferð á Focusnum
Heyrði einu sinni sögu af manni sem fór til hans í leit að einhverju forlátum koppum sem hafði hafði gert dauðaleit að. Hann eltir Valda inn í skúr þar sem Valdi fer eitthvað á bakvið en kemur svo aftur með koppinn sem vantaði.
Maðurinn var hel sáttur með kaupin og smellir koppnum undir bílinn (bílstjóramegin) áður en hann keyrir heim. Svo þegar heim er komið röltir kappinn í kringum bílinn og sé þá að það vantar einn kopp farþegamegin.....nei hafði ekki Valdi karlinn labbað aftur fyrir skúrinn og að bílnum, hyrt einn kopp farþegamegin, fór aftur inn bakdyramegin og seldi kallinn einn eigin kopp
Guð má vita hversu mikið þessi saga hefur bjagast með tímanum, eða hvort hún er sönn til að byrja með, en sagan var góð
